If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Thursday, July 28, 2005

Versló

Planið er komið á hreint. Stúlkan sýnist mér ætla að taka púlsinn á umferðinni um helgina. Legg af stað eftir vinnu á morgun til ma&pa í bústað á Kirkjubæjarklaustri og verður litli bró í för með mér. Awesome!!
Við stoppum þó stutt, enda ekki hægt að vera fjarri siðmenningu borgarinnar of lengi og keyrum heim á laugardeginum (jah, meira svona laugardagskvöldinu).
Veit svo ekki hvort maður kíkir í bæinn um nóttina, fer eftir veðri og vindum held ég bara. Enda verður maður að vera ferskur fyrir Monkí bissniss 2005.
Þið spyrjið kannski hvað er Monkí bissniss 2005?? Það skal ég segja ykkur. Monkí bissniss 2005 er íþróttamót með rónaívafi. Ætlum við stúlkurnar að keppa í allskonar íþróttum á sunnudaginn og verður áfengið ekki skammt undan. It will be awesome I tell you!!
Við erum búnar að skipuleggja fullt af íþróttum og í lok kvöldsins verður krýndur sigurvegari og ef við verðum ekki dauðar eftir daginn þá verður vonandi slappað af í pottinum og kíkt á djammið. Vúhú!!

Jæja folkens

Leiteró og akið varlega um helgina :)

Monday, July 25, 2005

NO title

Farið að styttast í för mína til Þýskalands...jamm og já...brottför 17.ágúst. Sá tími sem ég hef áður en ég fer út verður varið með vinum og fjölskyldu :)
Er að hugsa um að skella mér í bústað næsta föstudag, byrjun verslunarmannahelgar, til famelíunnar hjá Kirkjubæjarklaustri og bruna svo í bæinn á laugardagskvöldinu og starta heljarinnar íþróttamóti sem er í planlagningu á sunnudeginum.
Lengra er ég nú ekki komin í hugsunum en hins vegar er nokkurn vegin komið á hreint að ég mun kveðja stúlkurnar mínar í sumarbústaðaferð helgina áður en ég fer út.
Það verður fjör sem endranær!!

Ætla enda þetta núna, er með of mikinn hausverk og 4 mínútur eftir af vinnunni :)

L8er

Wednesday, July 20, 2005

Atburðir helgarinnar

Kannski kominn tími til að segja aðeins frá helginni.

Föstudaginn 15. júlí fagnaði LN tvítugsafmæli sínu með því að blása til veislu. VIP – fólkinu var boðið fyrr til aðtaka forskot á sæluna, smakka á Svamp Sveinsson – kökunni og njóta veitinganna. Um tíuleytið fór svo restin af liðinu að týnast inn. Maður blandaði geði við liðið en reyndar þá geri ég mér ekki grein fyrir hvar ég hékk mestan hluta afmælisins, held samt að ég hafi verið úti.
Um tvöleytið var ákveðið að skella sér úr Garðabænum niður í miðborg Reykjavíkur. Við tókum leigubíl og ætlaði Stellan að gera rosa díl við bílstjórann, 2500 fyrir farið niður í bæ það var reyndar ekki betra en svo að farið endaði í 1900 kalli!!
Byrjuðum á Kofanum en þar var svo troðið að ég nennti ekki að vera þar og dreif mig á Hressó, þar var líka troðið.
Stelpan ákvað því að hún nennti þessu ekki og dreif sig heim. Vaknaði daginn eftir með hausverk en öðruleyti bara nokkuð góð J
(Skemmtilegt hvernig breytt er á milli 1. og 3. persónu í textanum).

Laugardaginn var búinn að festa í annað Hawai – HR – Skvísudjamm og því þurfti að fara og redda því sem því tengdist.
Ég og Vigga tókum að okkur undirbúning og sótti ég skvísuna og við drifum okkur í Ríkið. Vorum búnar að vera að skoða uppskriftir að kokteilum á netinu og tékka á partýbúðinni þar sem kaupa átti fylgihlutina.
Vorum mættar í Kringluna um 3 leytið og ákváðum að kaupa í Blue Lagoon – kokteilinn. Tíminn var naumur svo við drifum okkur í Partýbúðina sem lokaði klukkan fjögur, mættar á staðinn hálf þá eru öll ljós slökkt og útlitið ekki gott. Í ljós kom að sumaropnunartími var í gangi og búðin lokaði klukkan tvö. Bömmer!! Hvað gera Danir þá?? Brunuðum í Leikbæ – ekkert þar, Hagkaup – ekkert þar. Náðum svo í Hókus Pókus rétt fyrir lokun – fjúff!!
Keyptum svo bara inn fyrir partýið og mættum til Gurrýar um 8 leytið og gerðum allt reddí.
Stúlkurnar týndust svo inn ein af annarri um níuleytið. Partýið byrjaði rólega en náði hámarki þegar við fórum í Actionary – leik og náðust skondnar myndir af flestum í þeim leik J
Ætluðum svo að halda hópinn og fara á Óliver niðrí bæ en röðin var svo rosaleg og troðningurinn mikill að Stellan nennti þessu ekki, dreif mig aðeins á Kofann, hitti fólk, fór með þeim stutt á Celtic en fór svo í LÖNGU leigubílaröðina og heim.

Já, þetta var helgin mín!!

Hvað á að gera um næstu? Slappa af, ekkert að djamma, kannski að kíkja uppí sumó ef einhver nennir með mér.

Heyri í ykkur

Friday, July 15, 2005

LNovitch

Shout out to mæ frend LN sem á TUTTUGU ára afmæli í dag!!

Flugferð

Það er komið á hreint. Klukkan 7:25 að morgni 17.ágúst legg ég af stað í ævintýraferð. Þaðan mun ég síðan snúa aftur þann 19.desember. Já ég er búin að bóka miðann til Þýskalands, no turning back now!!
Maður er bara á fullu að redda hinu og þessu, fæ reyndar ekki íbúð fyrr en ég kem út, soldil óvissa þar. En allt annað er svona nánast komið á hreint.
Eins og sannur Íslendingur þá segi ég bara "Þetta Reddast"!!

Adios í bili

Wednesday, July 13, 2005

Without gravity

Ég er komin í sjálfboða kynningarstörf!!
Langar bara að koma því á framfæri að Without Gravity er að spila á Gauknum í kvöld, æðislegur söngvari!! Maður er bara dáleiddur, hann syngur svo vel.
Húsið opnar kl. 22:00
Frítt inn
Be there

Monday, July 11, 2005

Mér finnst...

Silvía Nótt fyndin og kúl.
"Kærastinn minn, Biggi í Maus, sko..."
"Ýkt kúl skiluru!!"
"Gummi frændi..."
"Tony hjá Sony"
"Æ, nenniru ekki að spila þetta lag, minnir mig bara á fyrrverandi kærastann minn, Bigga í Maus" og alls konar snilld sem vellur uppúr henni.

Líka "gott" viðtalið við hana í Séð&Heyrt og Birtu!!

(ansi margar "" í þessum texta)

Friday, July 08, 2005

Lægð

Já það er lægð í blogginu hjá mér þessa dagana. Veit bara ekkert hvað ég á að segja við ykkur elsku dúllurnar mínar. Hef kannski fullt að segja en það er meira svona face2face.

Blogga eikvað skemmtó yfir helgina þar sem að ég er að fara að djamma í kvöld og komin með þráðlaust net og get hangið í tölvunni ALLTAF!!
Vúhú

Monday, July 04, 2005

"Hvar er draumurinn..."

Mig dreymdi í nótt að ég hefði verið komin til Þýskalands og að Arna hefði ákveðið að koma með mér. Halda mér félagsskap svona fyrstu dagana. Við lendum og drífum okkur út á lestarstöð en við höfðum misst af lestinni, mættum tvem mínútum of seint svo við fengum ekki að fara í lestina. Lestarferðin átti að taka 15 tíma svo þetta var frekar fúlt en við ákveðum þá að rölta í bæinn og finna okkur gistingu einhversstaðar. Á fyrsta staðnum sem við mætum fáum við ekki gistingu, kallinum leist ekki á okkur (man samt ekki afhverju). Við höldum áfram og finnum loks herbergi. Gistiheimilið var samt frekar eins og flóttamannabúðir eða eikvað því það voru 7 rúm í hverju herbergi. Næsta sem ég man er að við ætlum að taka taxa og í honum voru bara allar Pink gellurnar mínar, ofsa gaman....svo bara man ég ekki meir eða vaknaði, er ekki alveg viss.
Ég er allavega farin að hlakka geðveikt til að fara til Þýskalands, pínu smeyk líka en samt aðallega spennt.



P.S. Maður verður nú að minnast á að það var bara celebriety á GrandRokk á föstudagskvöldið. Viggo kallinn Mortesen eða Aragon eins og margir þekkja hann kannski sem á staðnum. Awesome!!