If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Saturday, February 26, 2005

Dugnaður í stúlkunni

Maður er orðinn svo samviskusamur bloggari, bara daglega og geri aðrir betur!
Skellti mér á kaffihús með Svövu í gær sem var ósköp þægilegt og fínt, eina sem böggar mig við svoleiðis er fýlan sem festist við mann. Kippi mér ekkert upp við það þegar ég er að djamma, þá er það bara eðlilegur hlutur sem maður sættir sig við.

En að öðru þá var ég að fjárfesta í gleraugum...geðveikt flott sko :) Sjónin nefnilega versnar í flestum tilvikum með árunum og maður yngist víst ekkert.
Munið þegar maður var lítill að bíða eftir strætó þá sá maður úr þvílíkri fjarlægð hvort að strætóinn manns var koma. Svo er víst ekki lengur...allavega ekki í mínu tilviki.

Later people

Friday, February 25, 2005

Útþrá 2005

Mig langar svo að fara til útlanda að ég er að deyja. Er að spekúlera að fara í skiptinám í haust en aðalvandamálið er að ég veit ekki hvert mig langar að fara. Í rauninni get ég bara ekki gert uppá milli staðanna, mig langar á þá alla. Hafa allir sína kosti og sína galla alveg örugglega. En það er svo lítið hægt að dæma eftir heimasíðum. Maður verður bara að fara og upplifa staðinn.
Ég skipti um skoðun hvert mig langar á ca. klukkutímafresti. Eina vandamálið við þessa útþrá mína er að mig langar ekki að fara ein, það væri ósköp gott að fá einhvern með sér. Svona svo maður verði ekki of einmana og fái heimþrá! Því ég er óttalega heimakær. Hugsa að það myndi reddast að vera einn en samt...!
Jæja þýðir ekki að vera að drepa niður móralinn á föstudagskvöldi.

"You can't know where you're going until you know where you've been"

Thursday, February 24, 2005

Snilld

Held ég hafi bara massað prófið áðan...eða ég tel mér trú um það þangað til annað kemur í ljós.

Hávdí

Folkens bolkens...!! Ég get svarið það, held að það detti allr hugsanir úr hausnum á mér þegar ég er að reyna að skrifa eikvað á þetta blessaða blogg.
Er að bíða eftir að klukkan slái 16 því þá á ég að fara í heimapróf í Viðskiptalögfræði. Er reyndar veik en við hljótum að massa þetta próf samt sem áður.
Vá, hausinn á mér er gjörsamlega tómur þessa stundina, veit kannski ekki á gott þar sem að hann þarf að vera í fullu fjöri eftir rúmlega klukkustund. Sheihæze!!

Dettur ekki meira í hug...later folkens!

Monday, February 21, 2005

Bleh

Vá þetta gengur bara ekkert hjá mér á þessu blessaða blogspot dæmi. Kann ekki einu sinni að setja tenglalista inn, hvað þá eikvað annað.
Maður er við það að gefast upp enda er ég lítill bloggari í mér, held ég sé bara ekki tilbúin til að skuldbinda mig gagnvart þessum heimi alveg strax. Vil bara vera minn eigin herra, engum háð!!!

Saturday, February 12, 2005

Afhverju?

Afhverju bíður maður alltaf þangað til maður er orðinn svangur með það að pæla í hvað mann langi að borða? Svo er maður orðinn svo sársvangur að maður meikar ekki að gera eikvað flókið að borða að maður skýst útí sjoppu að kaupa sér að borða. Ég er allavega alltaf að lenda í þessu!! Þetta hefur mjög neikvæð áhrif á bankareikninginn því það er nú ekkert sérstaklega ódýrt að kaupa sér langloku og kók eða whatever.
Skemmtileg pæling..!

Saturday, February 05, 2005

Life is what happens when you are busy making plans!

Tuesday, February 01, 2005

Jamm og já!!

Vá, ég sit hérna í bás uppí skóla að reyna að lesa eikvað af þeim fjölmörgu námsbókum sem ég er eftir á í. Er ekkert að ganga neitt sérstaklega vel eins og þið getið ykkur væntanlega til um þar sem að ég er að blogga en ekki að lesa bókina mína.
Er líka að hlusta á yndislegt lag með John Mayer – Your body is wonderland, man hvað þessi gaur syngur vel. Mig langar helst til að hefja upp raust mína en þar sem að ég sit inná bókasafni umkringd fullt af fólki þá tel ég það ekki ráðlegt.

Hérna er allavega textinn svo þið getið raulað.

Your Body Is Wonderland

We've got a big afternoon
You've got this room for two
One thing now left to do
Discover me, discovering you
One mile to every inch
Your skin like porcelin
One pair of candy lips and
Your bubble-gum tounge

(SEMI-CHORUS)
And if you want love, we'll make it
Swim in a deep sea of blankets
Take all your big plans and break 'em
This is bound to be why...

(CHORUS)
Your body is a wonderland...
Your body is a wonder,
I'll use my hands
Your Body is a wonderland...

Something bounds the way the hair falls in your face
I love the shape you take when crawling towards the pillow case
You tell me where to go and though I might leave to find it,
I'll never let your head hit the bed with out my hand behind it

(SEMI-CHORUS) (CHORUS)
Damn, baby You frusrate me I know you're mine,
All mine, all mine
But you look so good, I
t hurts sometimes

(CHORUS)
I'll never fade from you
Now there's no reason I have enough of love in my hands
To last all season
And season 'round
Bum-ba bum, bum-bum-bum-bada
Bum-ba bum, ba ba ba ba

Ég reyni að vera dugleg að blogga svo :D

p.s. fór einhver úr skónum því ég er að drepast úr táfýlu!!