If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Sunday, March 27, 2005

Gleðilega páska ungarnir mínir...

Það er svo sannarlega vor í hjarta mér þessa dagana, reyndar svo mikið að ég skrapp á línuskauta áðan til að ná í bílinn minn. Komst hálfa leið, þá gafst ég upp á skautunum og labbaði hinn helminginn. Þolið er ekki uppá sitt besta auk þess sem götur Reykjavíkurborgar hafa ekki verið sópaðar, sem er bara pirrandi fyrir línuskautavegfarendur. En hressandi var það engu síður!! Svo var ég alveg komin í stuð með að shæna bílinn minn en komst því miður ekki svo langt, náði bara hugsa um það, þá var einhvern veginn allur dugnaður úr mér og ég ákvað frekar að leggjast yfir Sex and the city og slappa af. Það munu nefnilega verða fá tækifæri til þess á komandi mánuðum þar sem að prófa- og verkefnatörn er á næsta leiti.

En nóg af þessu, ætla að gerast húsleg og fara að elda!!

Leiteró!!

Friday, March 25, 2005

Jess mæ beibís

Langt um liðið síðan maður bloggaði síðast og sumir segja jafnvel að það sé tími til kominn að maður hendi einhverju smá niður.
Það er helst í fréttum að Fisher lenti á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi og var hann ekki fjarri mínum heimahögum. Bein útsending frá vellinum og alles. Loftið nánast jafn rafmagnað og þegar Keiko kom til eyja.
Annað í fréttum er kannski helst að nú í páskafríinu situr maður flesta daga í skólanum og undirbýr sig fyrir prófin. Próflestur er samt ekki það strangur að maður fái nú ekki að sofa út!!!

Jæja, nú ætla ég heim!!

Adios

Monday, March 07, 2005

Þrastaskógur

Helgin var snilld. Góðum stundum varið í hópi yndislegra vina. Spiluðum, kjöftuðum, átum og drukkum. Flatmöguðum líka í pottinum alveg þó nokkra stund. Segi betur frá þessu seinna. Þetta verður samt endurtekið enda kom maður endurnærður heim tilbúinn að takast á við vikuna.

Tuesday, March 01, 2005

Helgin

Leiðin liggur útá land um helgina...við stúlkurnar stefnum á heljarinnar pottapartý í Þrastaskógi. Flest allt hefur verið ákveðið (já stelpur geta ekki farið neitt nema einhver skipulagning sé á bak við það). Planið er að troða sig útaf nammi, góðum mat og svo að sjálfsögðu verður því skolað niður með góðum drykkjum.
Man I can't wait!!!