If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Thursday, December 03, 2009

ég kemst í jólafíling

Bara tvær vikur eftir í skólanum og því nóg að gera þessa dagana. Hlakka svo ótrúlega mikið til þegar þetta tekur loks enda, þar sem síðasta mánuðinn eða svo hefur verið brjálað að gera, svo maður hefur varla tíma til að anda.

Næsta vika verður uppbókuð í fundum við að klára hópaverkefnin sem skil er á í vikunni á eftir eða seint í næstu viku.

Ég sé laugardaginn 12.des í hyllingum, en þann dag er ég búin að taka frá fyrir jólagjafastúss þar sem ætlunin er vera búin að öllu þegar ég kem heim.

Er á góðri leið í jólagjöfum. Held ég sé hálfnuð með þetta og hugmyndir fyrir langflestar komnar.

Annars er komin smá heimþrá í mann, svo það verður ljúft að lenda á klakanum 19.desember. Detta í dekur og rólegheit, þar sem hópafundir og skólalærdómur verða víðsfjarri. Allavega í nokkra daga :)

Höfum þetta stutt, hef engar sögur að segja, ekki frekar en fyrri daginn..

Knús í hús!!



3 Comments:

At 10:57 PM, Anonymous Guðrún Ásta said...

Hæ sætasta mín, hlakka alveg ofur til að fá þig heim. Knús í hús!

 
At 10:38 PM, Anonymous Anonymous said...

Mér finnst þú eigir að gera eitthvað hræðilegt af þér - bara svona til að hafa eina góða sögu áður en þú kemur heim! ;)

Hlakka til... :)

HG

 
At 10:25 AM, Blogger Stella Björk said...

HG, það er umhugsunarefni. Einhverjar tillögur hvað ég get gert.

Þarf að hugsa þetta. Fæ eitt kvöld í Köben áður en ég fer heim, reyni að gera eitthvað flippað þar.

Allar tillögur vel þegnar :)

 

Post a Comment

<< Home