If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Tuesday, October 27, 2009

They will not force us..

Er komin til Gautaborgar eftir yndislega daga í Stokkhólmi með Villa, Örnu og Gísla.
Ligg reyndar í veikindum þessa stundina. Byrjaði að slappast á leiðinni heim í lestinni í gær og svo skullu þau á með fullum þunga í nótt. Ákvað því að sleppa því að mæta á hópafundinn sem átti að vera í dag og vera frekar hress á morgun, svo maður geti tæklað síðustu vikuna í fyrsta hluta.

En að Stokkhólmi. Á hádegi á fimmtudaginn síðasta lögðum ég og Villi af stað í lestinni til Stokkhólms. Tókum Intercity lestina sem þýddi 5 tímar í lest í stað þriggja eins og vanalega. Þegar við vorum nýsest uppgötvuðum við að það var hvergi hægt að stinga tölvunum í samband og bæði vorum við með frekar lítið batterí eftir. En lestarferðin var þó ekki eins slæm og við sáum fyrir okkur í upphafi ferðar. Við drógum upp spilinn og tíminn leið bara ótrúlega hratt.

Á lestarstöðinni tók Arna mín og Gísli á móti okkur. Var svo gaman að sjá þau. Þau höfðu lent í Stokkhólmi nokkrum tímum áður og höfðu tekið smá rölt um borgina á meðan þau biðu eftir okkur. Eftir fögnuð endurfundana var rúllað af stað til Lidingö á meðan Villi fór og náði í sængur svo gestirnir myndu nú hafa það aðeins kósý á meðan dvöl þeirra stæði. Ég var aðeins rugluð hvert við ættum að fara fyrst en náðum áttum að lokum og á áfangastað komum við.

Villi eldaði TikkaMasala kjúkling sem við gæddum okkur á af bestu lyst á fimmtudagskvöldið.
Þar sem ellismellurinn Arna varð 25 ára deginum áður fórum við á Vampire Lounge og skáluðum í kokteilum. Þreytan sagði samt fljótt til sín og því var ekki verið lengi úti það kvöldið.


Föstudagur fór í búðarráp þar sem ég, Arna og Gísli styrktum öll sænska efnahagslífið og komum heim með nokkra poka hver. Á föstudagskvöldið fórum við svo í Íslendingapartý. Við uppgötvuðum reyndar fljótlega eftir komuna að partýhaldarinn átti afmæli og við ekki með pakka. Nokkrum mínútum áður en ég fékk vitneskju um afmælið var ég einmitt að velta fyrir mér afhverju allir komu færandi hendi. Fékk stuttu seinna svar við því :P

Laugardagurinn var stóri dagurinn. MUSE!!
Við vöknuðum í seinni kantinum og ákváðum bara að rölta um bæinn. Vorum boðin í Íslendingafyrirpartý fyrir tónleikana. Þar voru lögin blöstuð áður en rölt var á Hovet þar sem tónleikarnir voru haldnir. Geggjaðir tónleikar. Skemmti mér gríðarlega vel og gat meira að segja aðeins sungið með.


Eftir tónleika var annað partý. Mingluðum, dönsuðum og drukkum þar og skemmtum okkur hið besta. En þar sem Villi á heima í rassgati hættum við ekki á að fara alltof seint heim. Þessa nótt græddum við klukkutíma sem kom sér vel þar sem við sváfum alltof lengi frameftir á sunnudeginum þrátt fyrir fögur fyrirheit um að vakna snemma.
Ég og Arnan skottuðumst í bæinn þar sem Arna bætti við nýjum dressum. Ég hélt mig aðeins meira til hlés, enda nægur tími fyrir mig til að versla.

Á sunnudagskvöldið fórum við á geðveikan Sushistað þar sem maður borðaði á sig gat. Staðurinn heitir Asahi Sushi og bauð vel. 15 bitar á 99 krónur var góður prís.

Á mánudeginum tókum ég, Arna og Gísli semí skoðunarferð auk þess sem við tjilluðum á nokkrum stöðum víðsvegar um borgina. Villi þurfti hins vegar að fara í skólann.

Um sjöleytið í gær var svo komið að heimför. Ég knúsaði Örnuna mína fast og hlakka ótrúlega til að sjá hana eftir bara 8 vikur. Villa knúsaði ég líka en vona nú að það sé styttra þar til ég sé hann.

Svona var helgina í mörgum orðum.

Hafið það gott,
Stellino

Monday, October 19, 2009

Starlight..

Nú er farið að styttast allverulega í Muse tónleika og verslunaræði.

Tónleikarnir eru næsta laugardag en Arna kemur til Stokkhólms á fimmtudaginn og þá ætlum við sko að skottast aðeins í búðunum. Ég hef ekki verslað mér neitt svo það er svo sannarlega kominn tími á það.
Er að vona að ég nái að hrista af mér strætósektina sem ég fékk um daginn þannig að ég geti eytt auka 1200 sænskum krónum. Það telur.

Annars er málið með strætósektina það að ég átti kort í strætó sem gildir í 30 daga. Í cirka 2 vikur ferðaðist ég á kortinu án þess að á því yrði tékkað. Svo er ég í strætó síðasta fimmtudag þegar verðirnir koma inn og biðja um að sjá kortin hjá öllum. Ég rétti þeim mitt í sakleysi mínu. Vörðurinn skannar kortið, horfir einkennilega á mig og biður svo um skilríki. Ég sýni henni stúdentakortið mitt og spyr hvort það sé ekki allt í lagi. Þá kom í ljós að ég var að ferðast á korti sem er ætlað svokölluðum skolungdom sem eru skólakrakkar á aldrinum 15-19 ára. Já sæll!! Kallinn í búðinni hafði semsagt selt mér eitthvað bandvitlaust kort, og ég stóð uppi með 1200 króna sekt í vasanum.

Brjáluð fór ég fyrst á miðasöluna hjá Strætó en þær bentu mér á skrifstofuna í næsta húsi. Þegar þangað var komið var mér sagt að ég gæti ekki kvartað fyrr en daginn eftir að ég fengi sekt. Dreif mig svo loksins í dag og útskýrði að ég hefði verið afgreidd um vitlaust kort. Þá kom í ljós að ég þurfti að fara í búðina sem seldi mér kortið og láta þá votta að þeir hefðu selt mér vitlaust kort.
Á heimleiðinni kom ég við í búðinni og fékk kallinn til að undirrita bréf um mistökin. Það þarf ég svo að senda á Strætó og er ég að vona að eftir það fái ég sektina niðurfellda.

Vona allavega að ég hafi ekki lagt allt þetta á mig til einskis. Þetta er komið í 5000 kall á tímann öll vinnan sem ég er búin að leggja á mig.

Farið að styttast í annan endann á fyrsta hluta í skólanum svo. Nóg að gera í "hótelinu mínu" og ótrúlegur tími sem fer í allskonar hluti og ákvarðanir sem maður þarf að pæla í. Það verður sko fagnað þegar það er búið.

En annars er Villi hérna alla vikuna. Kallinn bara kominn í semí-haustfrí í sínum skóla og ákvað að hafa það bara næs í Gautaborg á meðan konan fer í skólann alla daga. En við tökum svo lestina saman til Stokkhólms til móts við Örnu og félaga á fimmtudaginn.

Hef ekki meira að segja í bili.

Þar til seinna,
Stellino

Monday, October 12, 2009

When love takes over

Sweet wonderful Copenhagen að baki.

Lagði í hann á föstudagsmorgni, nánar tiltekið 5:35 þar sem lestin átti að leggja í hann frá aðalbrautarstöðinni í Gautaborg klukkan 6:27.
Fann sætið mitt og kom mér vel fyrir, dró húfuna niður fyrir augu og dottaði þar til ég kom að Lundi. Þá var maður tilbúinn að vakna þar sem það styttist í að maður myndi lenda í Köben.
Fannst nokkuð gaman að keyra svo í gegnum gamla heimabæinn minn Malmö. Vakti þokkalega upp minningar.

Í Köben tók Sigga, fyrrverandi vinnufélagi úr Glitni, á móti mér og við skelltum okkur í bröns á kaffihúsi nálægt tívolíinu.
Náðum aðeins að spjalla og slúðra áður en Villi (maðurinn sem ég hafði aðeins séð í gengum Skype í fjórar vikur) mætti á staðinn. Var svo glöð að sjá hann.

Við kvöddum svo Siggu og hringdum í Óla sem kom brunandi á bensínknúnum fák og sótti okkur og keyrði okkur á gististaðinn á Íslandsbryggju.
Komum okkur aðeins fyrir en drifum okkur svo fljótt af stað að kíkja niðrí bæ og fá okkur eins og einn öl.

Um kvöldið fórum við á Kebabish - vinsælan Kebab-stað sem var mjög ljúffengur. Eftir það var kíkt á Strecket og bjórinn sötraður í lítravís. Októberfest tilboð á barnum þar sem bjórinn var seldur í líterskrúsum.

Mikið stuð þetta kvöld sem endaði þó ekki nógu vel. Keppnismanneskjan Stella var mönuð af kærastanum sínum í kapp og sem tókst ekki betur en svo að ég slide-aði götuna og uppskar auman fót, marbletti og brunasár.

Á laugardegi drifum við okkur í Tívolí. Nokkrir fóru í rússíbanan en ég ákvað að fara í fallturninn. Frekar brött á því áður en ég settist í sætið og spennt beltið, en ekki jafn brött eftir að beltið var spennt og ég var á uppleið. Vá, hvað ég hélt að við ætluðum aldrei að stoppa. Niðurleiðin var betri og tók fljótt af.
Fór ekki í fleiri tæki þar sem það er meðal annars bara súper dýrt.

Tókum svo afslappelsi í fínu íbúðinni á Íslandsbryggju, pöntuðum Sushi og svo komu ótal Íslendingar í heimsókn þar sem sushi var borðað, áfengið var teygað, strákarnir horfðu á leikinn, drykkjuleikir og dans. Heljarinnar stuð sem leiddi til þess að heiðursgesturinn (hvorki ég né Villi) missti sig í gleðinni og komst ekki lengra en að Tívolíinu þegar ákveðið var bærinn væri ekki málið fyrir hann þetta kvöld.
Ég og Villi sáum um fellow-Svíabúann og tókum hann heim.

Daginn eftir voru allir hressir, ótrúlegt en satt. Um hádegi var svengdin farin að segja til sín svo við örkuðum á Strikið til að fá okkur að borða og síðan var gengið aftur heim þar sem veðrið og kuldinn buðu ekki uppá mikla útiveru.

Tókum svo almennt tjill áður en lestin flutti mig og Villa til Gautaborgar.

Núna er Villi farinn heim og ég er byrjuð í brjálæðinu aftur. Skóli skóli skóli.

Annars verð ég að geta þess að mér gekk súpervel á prófinu sem ég fór í um daginn. Íslenska einkunninn væri 9,5 en sænska gefur mér VG (very good)!
Mjög sátt!

Meira síðar,
Stay tuned.
Stellino

Tuesday, October 06, 2009

Do you need anybody..

Stutt blogg áður en ég skýst á "Board of directors meeting"!

Helgin var viðburðalítil. Veðrið var vont á laugardeginum svo ég nennti ekkert út þann daginn. Fannst þó nóg komið af leti á sunnudeginum svo ég dreif mig út í hjólatúr, sem var hressandi en afskaplega erfitt. Þolið er nefnilega ekki uppá marga fiska þessa dagana, þar sem flestir dagar fara í lærdóm og þess háttar. Heilinn er því í heilmikilli leikfimi en líkaminn situr á hakanum, ef frá er taldur daglegi göngutúrinn minn á strætóstoppistöðina sem tekur 7 mínútur.

Ný vika hefur svo hafist með látum þar sem ég er að vinna í tveimur hópaverkefnum þessa stundina, sem taka frekar mikinn tíma. Sérstaklega annað, sem ég er einmitt að fara á fund með kennurunum á eftir. Þarf kannski að svara einhverjum CFO spurningum :S

Annars er það helsta að ég tel niður dagana (eða réttara sagt klukkustundirnar) þar til ég fer til Kaupmannahafnar í yndislega helgi að hitta Villa (og fleiri). Núna eru t.d. aðeins 67 og hálf klukkustund þar til lestin mín mun renna inn á Hovedbanegarden í Copenhagen. Kreisí æ nó en tilhlökkunin er bara svona mikil.

Semsagt lítið að frétta af mér núna. Skólinn tekur mestan tíma minn þessa dagana, sem er mjög fínt því þá líður tíminn hraðar. Sorglega er samt að maður á ekkert líf utan skólans :S

Farið að styttast í fundinn og CFO-inn þarf aðeins að undirbúa sig.

Later,
Stellino