Atburðir helgarinnar
Kannski kominn tími til að segja aðeins frá helginni.
Föstudaginn 15. júlí fagnaði LN tvítugsafmæli sínu með því að blása til veislu. VIP – fólkinu var boðið fyrr til aðtaka forskot á sæluna, smakka á Svamp Sveinsson – kökunni og njóta veitinganna. Um tíuleytið fór svo restin af liðinu að týnast inn. Maður blandaði geði við liðið en reyndar þá geri ég mér ekki grein fyrir hvar ég hékk mestan hluta afmælisins, held samt að ég hafi verið úti.
Um tvöleytið var ákveðið að skella sér úr Garðabænum niður í miðborg Reykjavíkur. Við tókum leigubíl og ætlaði Stellan að gera rosa díl við bílstjórann, 2500 fyrir farið niður í bæ það var reyndar ekki betra en svo að farið endaði í 1900 kalli!!
Byrjuðum á Kofanum en þar var svo troðið að ég nennti ekki að vera þar og dreif mig á Hressó, þar var líka troðið.
Stelpan ákvað því að hún nennti þessu ekki og dreif sig heim. Vaknaði daginn eftir með hausverk en öðruleyti bara nokkuð góð J
(Skemmtilegt hvernig breytt er á milli 1. og 3. persónu í textanum).
Laugardaginn var búinn að festa í annað Hawai – HR – Skvísudjamm og því þurfti að fara og redda því sem því tengdist.
Ég og Vigga tókum að okkur undirbúning og sótti ég skvísuna og við drifum okkur í Ríkið. Vorum búnar að vera að skoða uppskriftir að kokteilum á netinu og tékka á partýbúðinni þar sem kaupa átti fylgihlutina.
Vorum mættar í Kringluna um 3 leytið og ákváðum að kaupa í Blue Lagoon – kokteilinn. Tíminn var naumur svo við drifum okkur í Partýbúðina sem lokaði klukkan fjögur, mættar á staðinn hálf þá eru öll ljós slökkt og útlitið ekki gott. Í ljós kom að sumaropnunartími var í gangi og búðin lokaði klukkan tvö. Bömmer!! Hvað gera Danir þá?? Brunuðum í Leikbæ – ekkert þar, Hagkaup – ekkert þar. Náðum svo í Hókus Pókus rétt fyrir lokun – fjúff!!
Keyptum svo bara inn fyrir partýið og mættum til Gurrýar um 8 leytið og gerðum allt reddí.
Stúlkurnar týndust svo inn ein af annarri um níuleytið. Partýið byrjaði rólega en náði hámarki þegar við fórum í Actionary – leik og náðust skondnar myndir af flestum í þeim leik J
Ætluðum svo að halda hópinn og fara á Óliver niðrí bæ en röðin var svo rosaleg og troðningurinn mikill að Stellan nennti þessu ekki, dreif mig aðeins á Kofann, hitti fólk, fór með þeim stutt á Celtic en fór svo í LÖNGU leigubílaröðina og heim.
Já, þetta var helgin mín!!
Hvað á að gera um næstu? Slappa af, ekkert að djamma, kannski að kíkja uppí sumó ef einhver nennir með mér.
Heyri í ykkur

1 Comments:
Ég er til í hvað sem er! Eftir kl 14 á laugardaginn er ég free for anything! :)
Post a Comment
<< Home