Little bit of this and that
- Fyrsta blogg á nýju ári 2010 er skrifað í Stokkhólmi, nánar tiltekið á eynni Lidingö.
- Er búin að vera alltof lengi á leiðinni að skrifa þetta en loksins kom það.
- Ég og Villi erum nú flutt saman til Stokkhólms og höfum látið fara vel um okkur í litlu eins herbergis-íbúðinni hans.
- Flutningar hingað gengu þokkalega eða allt þar til á síðasta kaflanum sem var 800 metra gangur frá stoppistöðinni að íbúðinni hans Villa. Á miðri leið lentum við í því að haldfangið á einni töskunni sem var hægt að draga brotnaði, og eftir það þyngdist róðurinn töluvert. EN.. við komumst þó heim að lokum :)
- Dagarnir síðan ég kom hingað hafa liðið hratt, alltof hratt.
- Ég er ekki komin með vinnu en það kemur vonandi fljótlega.
- Síðastliðinn föstudag áttum við Villi eins árs afmæli sem við fögnuðum með að fara út að borða á tapas bar.
- Í gær fór ég ásamt nokkrum stelpum í Konunglegu Óperuna að sjá Rakarann frá Sevilla.
- Á morgun eru flutningar, því hefur staðið yfir heilmikil tiltekt (sem meðal annars fól í sér að afþýða ísskáp).
- Við komum til með að búa hjá félögum Villa í nokkra daga áður en við fáum okkar afhenta á sunnudaginn.
- Það verður áhugavert...
Læt heyra frá mér síðar,
Stellino
