If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Tuesday, November 24, 2009

Hlakka alltaf svo til...

Ég hlakka svo til ...
  • 23 dagar þar til Villi kemur til Gautaborgar
  • 24 dagar þar til við förum til Kaupmannahafnar
  • 25 dagar þar til við lendum á ástkæra klakanum
  • 30 dagar til jóla
  • 53 dagar þar til ég klára fyrstu önn í meistaranámi í markaðfræði
  • og 53 dagar þar til ég flyt til Stokkhólms
Jáhá, ný stefna verður tekin eftir áramót. Flutningar til Stokkhólms á döfinni og nýr skóli næsta haust, ef allt gengur að óskum.

Námið í Gautaborg er búið að vera fínt þrátt fyrir brjálæði hvað varðar lestur og verkefnagerð. En mér finnst veran hérna ekki það skemmtileg að ég nenni að standa í þessu næstu tvö árin.

Þar sem ég get ekki skipt um skóla beint þarf ég að sækja um í Stokkhólmi fyrir næsta haust og vonandi fæ ég kúrsana mína metna. Veran ætti því ekki að lengjast nema um hálft ár, þó útlit á Íslandi líti nú ekki fyrir að batna alveg strax. Svo það er kannski bara fínt að vera aðeins lengur úti.

Planið er því að finna sér vinnu þegar ég kem til Stokkhólms. Finn vonandi eitthvað þar sem ég get látið reyna á sænskuna.

Annars 24 dagar í yndislegt "jólafrí"!! Jibbíkajeij!!

Later,
Stellino

Sunday, November 15, 2009

one minute I held the key..

Afsökun fyrir lélegheitum í bloggheimum síðustu vikur er ritstífla. Kannski af því að ég hef mest lítið vera að gera líka.

Skóli frá morgni til kvölds að mér finnst og nóg að gera í verkefnum og skólabókalestri.

En ég tók þó frí frá bókunum þessa helgina. Villi kom til Gautaborgar á miðvikudagskvöldið og höfðum við það rosalega gott þar til hann fór í hádeginu í dag.

Fjölskyldufólkið var að heiman þessa helgina svo við höfðum húsið útaf fyrir okkur og líkaði það ekki illa.

Buðum gesti í mat á fimmtudagskvöldið þar sem boðið var uppá heimabakaða pítsu. Amminammi!

Á föstudegi höfðum við það náðugt, enginn skóli, svo við sváfum bæði til hádegis. Uppúr hádegi skelltum við okkur svo í pottinn og höfðum með okkur einn kaldan. (við dekrum sko við okkur í fríum). Eftir almenna leti og tjill fórum við svo niður í bæ á svokallað AfterWork þar sem krár og skemmtistaðir bæjarins bjóða uppá áfengi á hálfvirði og mat með. Nutum þess í nokkrar klukkustundir en fórum svo heim á sómasamlegum tíma, enda var byrjað snemma.

Laugardagur fannst mér í raun líkjast sunnudegi. Áfram var sofið frameftir en við ákváðum þó að kíkja aðeins út til að bæta á áfengisbirgðarnar (humm hljómar eins og við höfum ekki gert neitt annað en að drekka alla helgina). Annars var kvöldið rólegt. Bjuggum okkur til góðan mat og slöppuðum af.

Sáum því lítið af Gautaborg þessa helgina utan bæjarferðar á föstudeginum.
Þetta var semsagt góð afslöppunarhelgi sem er alveg það sem maður þarf áður en næsta törn í skólanum hefst.

Ég er byrjuð að telja niður dagana. 4 vikur og 5 dagar þar til ég kemst í jólafrí*

*jólafrí þýðir heimapróf sem skil er á 13.janúar og undirbúningur lokakynningar 13.janúar og lærdómur fyrir lokapróf 16.janúar.

Kveð að sinni,

Untill next time..
Stellino



Tuesday, November 03, 2009

I heard there was a secret code..

Þar sem ég á að vera að læra fyrir próf þá finnst mér bara vera komin tilvalinn tími til segja aðeins frá mér.

Eftir dvölina í Stokkhólmi kom ég lasin heim. Varð slöpp á leiðinni í lestinni og eyddi svo deginum eftir heimavið til að ná mér góðri þar sem lokaverkefniskynning var áætluð á föstudeginum.

Á miðvikudegi fannst mér ég ekki geta verið heimavið lengur þar sem það var brjálað að gera fyrir skólann svo ég dreif mig dúðuð af stað að hitta hópverkefnisfélagana. Dagarnir á eftir einkenndust af smá stressi vegna lokakynningarinnar en að lokum kom þetta allt saman og kynningin heppnaðist ágætlega. Segi ekki að hún hafi verið sú besta í heimi, sem var aðallega vegna enskuframburðar og fjölda að kynna auk þess sem einn meðlimurinn talaði frekar mikið um sitt og átti erfitt með að koma orðum að kjarna málsins sem leiddi til þess að við fórum aðeins yfir tímann.

En ég á von á ágætis einkunn, sem ég fæ vonandi að vita á morgun. Það er samt sem áður góð tilfinning að vera búin með einn áfanga en sá næsti klárast með lokaprófi á morgun. Er búin að vera að læra síðan á laugardaginn fyrir það og er orðin frekar þreytt.

En föstudagurinn eftir kynninguna var annars ágætlega viðburðaríkur. Eftir mat ákvað ég að kíkja í lítið útflutnings-íslendinga-partý. Það var hið fínsta en rétt fyrir tvö ákvað ég að fara að koma mér heim til að vera skynsöm þar sem próflestur tæki við daginn eftir.
Ég náði sporvagninum frá partýinu og átti svo að skipta yfir í minn strætó á skiptistöð rétt fyrir utan miðbæinn. Þegar ég var í sporvagninum hringdi ég í Villa til að láta hann halda mér félagsskap meðan ég biði eftir strætó og svo ég yrði látin í friði af fyllibyttum. Heppnaðist ekki betur en svo að fyrst kom inn afar drukkinn maður sem hafði ekki hugmynd um hvar hann var og hann spurði mig. Ég leiðbeindi honum eftir bestu getu og hann þakkaði fyrir sig og fór út stuttu seinna.
Þegar ég kom á skiptistöðina sá ég að það voru rúmar 20 mínútur í minn strætó. Var ekkert sérstaklega ánægð með það en kom mér fyrir á bekknum í strætóskýlinu og hélt áfram að tala við Villa. Eftir að hafa búin að vera að bíða í nokkrar mínútur kom lítið geðslegur maður og settist við hliðina á mér og sagði "Hej". Ég var að tala í símann og ákvað bara að ignora hann. Hann hélt áfram svo ég stóð upp og labbaði út fyrir strætóskýlið. Hann stóð upp stuttu seinna en þá ákvað ég að fara hinum megin við grindverkið þar sem strætó kemur sem fer í hina áttina. Fulli kallinn tuðaði eitthvað og svo heyrði ég bara einhver öskur um "Jävla skit" og fleira fallegt sem ég lagði ekki metnað í að skilja og svo hrækti hann í áttina að mér.
Við þetta ákvað ég að málið væri ekki að taka strætó þetta kvöld heldur fékk mér far með leigubíl.
Það er sko ekki í lagi með fólk. Óþolandi að maður fái ekki að spjalla í símann í friði og endi á að þurfa að leggja pening út fyrir öðrum samgöngum þar sem maður telur sig ekki öruggan.

En ég komst þó heil heim en mun líklegast fara á fjölfarnari stöð að bíða eftir strætó næst!

Jæja, þetta var saga dagsins. Verð að halda áfram að læra núna. Hallelúja!!