I got sunshine...
Ný vika þýðir nýtt blogg :)
Fyrsta próf annarinnar afstaðið en hvernig gekk er svo annar handleggur. Hef tekið þá stefnu að hugsa sem minnst um það þar til einkunnir koma í hús.
Síðasta vika leið svosem tiltölullega hratt. Fór í próflokapartý hjá einni í bekknum á mánudagskvöldið þar sem okkur langaði öllum að lyfta okkur upp eftir frekar daufa lærdómshelgi.
Sú sem hélt partýið býr á flottum stað með útsýni yfir alla Gautaborg. Hún býr í fyrrum vatnsturni sem gnæfir yfir borgina. Nokkuð töff að veggirnar í íbúðinni hennar eru ekki beinir heldur í boga, sem er þó kannski ekki einkar hagkvæmt svona upp á að raða húsgögnum að gera.
En partýið var hið fínasta þó þreyttur Stellulingur hafi nú ekki verið neitt rosalega lengi frameftir sökum takmarkaðra almenningssamgangna og almennar þreytu bara.
Í vikunni var okkur líka skipt niður í hópa fyrir næsta verkefni í faginu. Eigum að gera viðskiptaáætlun og stjórna hóteli í gegnum tölvukerfi. Okkur var úthlutað stöðum í fyrirtækinu og fékk ég stöðu fjármálastjóra eða CFO.... Hver treystir Íslendingi fyrir ábyrgri fjármálastjórn í dag??
Helgin fór svo í útstáelsi. Kíkti út bæði föstudag og laugardag auk þess sem ég tók mér góðan hjólatúr á laugardeginum. Hjólaði niðrí bæ, sem er ca.8 km frá heimili mínu og svo heim aftur eftir að hafa tekið smá bæjarrölt og eytt smá pening.
Var líka nánast aðframkomin á heimleiðinni og brekkurnar virkuðu mér ofviða, en það hafðist og heim komst ég.
Nú tekur við ný vika í verkefnavinnu.
Stay tuned for more..
Stellino
