If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Tuesday, November 24, 2009

Hlakka alltaf svo til...

Ég hlakka svo til ...
  • 23 dagar þar til Villi kemur til Gautaborgar
  • 24 dagar þar til við förum til Kaupmannahafnar
  • 25 dagar þar til við lendum á ástkæra klakanum
  • 30 dagar til jóla
  • 53 dagar þar til ég klára fyrstu önn í meistaranámi í markaðfræði
  • og 53 dagar þar til ég flyt til Stokkhólms
Jáhá, ný stefna verður tekin eftir áramót. Flutningar til Stokkhólms á döfinni og nýr skóli næsta haust, ef allt gengur að óskum.

Námið í Gautaborg er búið að vera fínt þrátt fyrir brjálæði hvað varðar lestur og verkefnagerð. En mér finnst veran hérna ekki það skemmtileg að ég nenni að standa í þessu næstu tvö árin.

Þar sem ég get ekki skipt um skóla beint þarf ég að sækja um í Stokkhólmi fyrir næsta haust og vonandi fæ ég kúrsana mína metna. Veran ætti því ekki að lengjast nema um hálft ár, þó útlit á Íslandi líti nú ekki fyrir að batna alveg strax. Svo það er kannski bara fínt að vera aðeins lengur úti.

Planið er því að finna sér vinnu þegar ég kem til Stokkhólms. Finn vonandi eitthvað þar sem ég get látið reyna á sænskuna.

Annars 24 dagar í yndislegt "jólafrí"!! Jibbíkajeij!!

Later,
Stellino

3 Comments:

At 9:58 AM, Blogger Matthea said...

Veistu, þetta hljómar bara sem mjöög gott plan! =) Og framtíðin verður alltaf öðruvísi en maður hafði hugsað hana, svo "hálft ár" er ekki neitt!

Prófvorkunarbaráttukveðjur yfir til þín! ;) Svo dansi dans eftir mánuð! Vúh!

 
At 5:40 PM, Anonymous Anonymous said...

Ánægð með hvað er stutt í þetta allt saman!

Líka ánægð með að þú kannt að segja ég hlakka svo til! ;)

Svo þyrfti nú hvítvínsklúbburinn að fara að stofna ferðasjóð - er ekki svo ódýrt í H og M í Stokkhólmi? :)

HG

 
At 6:49 PM, Blogger Stella Björk said...

MO: Get ekki beðið eftir dansidans. Lítið verið gert af svoleiðis í Gautó.
HG: Hræódýrt í Stokkhólmi og H&M, allavega svona miðað við Íslandsverðlag. Styð hugmyndina um ferðasjóð.

 

Post a Comment

<< Home