Fat bottom girls...
Tveir dagar búnir af nýnemavikunni og hingað til líst mér bara vel á þetta. Fólkið sem ég er allavega með í prógrammi virkar vel á mig við fyrstu sýn. Við erum víst 22 í bekknum að mér skilst, hefðum átt að vera 30 en það voru í víst 8 sem mættu ekki á skráningardaginn. 22 er því líklegast niðurstaðan og því bara vona á kósý-tæm hjá svona litlum bekk. Heheh.
Er annars að byrja í master sem heitir marketing and consumption og er þetta nýtt prógramm í skólanum. Hefur aldrei verið kennt áður og því svolítið spennandi að vita hvað maður er að fara út í. Eina sem ég hef í höndunum í dag er hvaða daga tímarnir verða næstu 6-8 vikurnar. Hef ekki hugmynd um hvernig verkefni eða kennslufyrirkomulag er, svo ég er mjög spennt að skólinn verði settur á mánudaginn.
En aftur að nýnemavikunni... Semsagt tveir dagar búnir.
Fyrsti dagurinn (í gær) fór aðallega í það að eldri nemar kynntu fyrir okkur skólann, félagslífið og lífið í Gautaborg almennt. Var ágætis dagur en mikill hluti hans fór í allskonar bið þar sem dagskráin var ekki að ná tímalimitinu sem hverjum dagskrálið var sett. Dagurinn byrjaði snemma um morguninn og lauk ekki fyrr um 6 leytið, eða þá fór ég allavega heim.
Í dag var dagurinn aðeins styttri. Fór á kynningu um skráningu inní landið, auk bókasafns- og heilsugæslukynningar. Eftir það dreif maður sig heim en það var víst ekki mikil hvíld sem maður fékk þar sem "the deputy major" hafði boðið nýnemum í Gautaborgarháskóla til formlegs kvöldverðar á slaginu 6. Ég fékk því skamman tíma til að gera mig til og finna formleg föt í þessu alltof litla úrvali af fötum sem ég er með (verð að fara að bæta úr því held ég). Þetta varð fínasta kvöld þar sem maður fékk að kynnast samnemendunum aðeins betur.
Dagskráin heldur áfram á morgun: tölvuaðgangur og rútuferð um borgina auk hópeflis. Það á sko ekki að láta manni leiðast hérna fyrstu dagana, sem er bara gott :)

