If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Thursday, March 11, 2010

Allir til STHLM


Mig langar í ný föt. Það er erfitt að reyna að spara í landi H&M. Mér finnst ég alltaf vera að eyða peningum en þó er fataskápurinn minn jafntómur og þegar ég flutti. Hið furðulegasta mál.
Síðan í janúar hefur enginn kjóll bæst í skápinn minn og bara tvö pör af skóm (eitt voru adidas töflur hitt sandalar fyrir Egyptalandsferð). Er þetta ekki skandall?? Mér finnst það.
Í þessi skipti sem ég hef kíkt í búðir til að finna eitthvað handa sjálfri mér hefur pressan orðið of mikil. Annaðhvort hef ég orðið fyrir vonbrigðum eða fengið valkvíða - í báðum tilvikum enda ég uppi með ekki neitt.

Maður segir þó ekki að maður sé aldrei að kaupa neitt. Bikiní & sandalar (nauðsynlegt fyrir sólarlandaferðir) og uppháir sokkar hafa nýlega fengið pláss í skápnum.

Málið með kvartinu mínu er ekki að ég sé vanþakklát heldur vantar mig bara shopping buddy - já, ég held það sé málið!! Svo ég hvet ykkur, lesendur góðir, til að koma í heimsókn til mín og hjálpa mér að eyða krónum. Sólin fer hækkandi og ég lofa góðu veðri í maí.
Þá er líka búið að opna tívolíið og nýfædd dýr í dýragarðinum og svona.



Jámms, ég vil Íslendinga í heimsókn í Fagradal!
Koma svo.

Ást,
Stellino!!

4 Comments:

At 7:16 PM, Anonymous Anonymous said...

Úff veist ekki hvað ég væri mikið til... :)

 
At 7:17 PM, Anonymous Anonymous said...

HG :)

 
At 11:48 AM, Blogger Unknown said...

Ég kemst því miður ekki í bráð en kannski næsta haust...ef ég má;)
Vona að þú finnir þér einhvern shopping buddý þanngað til...Ég hef sjálf verið mjög léleg í að versla mér eitthvað en kannski að maður finni sér eitthvað fallegt fyrir sumarið...:)

 
At 10:57 AM, Anonymous Guðrún Ásta said...

Hvenær eru þið að spá í að koma heim á klakann?
Ætla að koma en helv... námskeið er að setja strik í reikninginn... ég skal, vil og ætla :) Segðu þessum krónum að örvænta ekki.. við finnum út úr þessu :)
kv.
Gunns

 

Post a Comment

<< Home