If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Tuesday, April 26, 2005

Góður dagur eða þannig

Fann fyrir flökurleika í morgun svo ég ákvað að vera bara heima og vinna í verkefninu sem nú stendur yfir hjá mér. Gengur svona lala í þessu, mætti alveg ganga betur.
Helgin var annars yndisleg, slappaði af og gerði nánast ekki neitt. Tók til í herberginu, hreinsaði til í fataskápnum (enda komin tími til) og tók upp gamla handavinnu sem ég byrjaði á í 9.bekk. Stellan er ekkert lengi að hlutunum...nei nei!!

P.s. Það eru greinilega fleiri en Eva sem tekst að klessa á strætó!!

Óver end át

Tuesday, April 19, 2005

Gleði...

Gleði, gleði, gleði, gleði.....

Stellan er búin í prófum

Yndislegt

Friday, April 15, 2005

Meira en hálfnuð...

...með prófin. Þá eru bara tvö próf eftir sem verða mössuð á mánudaginn og þriðjudaginn.

Shout out... til Guggu sem er 22ja ára í dag. Til hamingju!!

Tuesday, April 12, 2005

Próflestur..

Próflestur hófst opinberlega um helgina. Fór í mannauðsstjórnun í gær og það skipti sko ekki máli hvort maður var búin að lesa í viku eða einn dag, maður var alveg jafn clueless. Já ég er sko ekki neitt sérstaklega bjartsýn með gengið í þessu prófi. Vona bara að ég hafi náð 5 svo ég þurfi ekki að taka það aftur!! Í alvörunni hversu erfið á mannauðsstjórnun að vera að maður rétt skríði. Gjörsamlega fáránlegt. Reyni samt að láta þetta ekki draga úr mér fyrir þau próf sem eftir eru.
Markaðsfræði á morgun sem verður vonandi ekki jafn brutal...! Nei, ég trúi því ekki uppá kellu :)

Thursday, April 07, 2005

Mér leiðist!!

Hvað er að frétta?? Í stuttu máli; Ekkert!!! Já það er ekkert að gerast hjá Stellunni þessa dagana, ekki einu sinni áhugaverðar pælingar í gangi.
En svona til að sýna lit í þessum blessaða bloggheimi þá mun ég gera mitt besta til að skemmta þér kæri lesandi.

Efst á baugi þessa dagana í mínu lífi er sumarið...já ég get ekki beðið eftir að sumarið komi. Hlakka svo til að hafa tíma til að koma mér í form, fara í sund, á línuskauta og fanga geisla á sólar á milli þess sem maður er að vinna.

That's all 4 2day folks

Tuesday, April 05, 2005

Prófin!!

Það eru bara 6 dagar í prófin og maður er orðinn nokkuð stressaður. Tek 5 próf á 8 dögum sem er nú ekkert lítið. Reyni að nýta hverja einustu stund í lærdóm en auðvitað er ekkert hægt að halda áfram endalaust, auk þess að sem að stressið gerir það að verkum að manni finnst maður ekki hafa tíma í neitt. Er að reyna skipuleggja mig en veit bara ekkert hvað ég á að leggja áherslu á að læra. Finnst þetta allt jafn mikilvægt á mismunandi hátt.
Vá hvað er að eiginlega að þvaðra. Of mikill lestur í dag held ég.
Segjum þetta gott.

Hear ya!!