If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Tuesday, December 15, 2009

Ég vild' að alla daga væru jól...

Verslunarferðum fyrir þessi jólin lokið. Neita eyða einni krónu enn í H&M á þessu ári.
Maður verður aðeins að hvíla sig á þeirri ágætu verslun áður en næsta ár með tilheyrandi útsölum gengur í garð.

Annars er minns bara glaður þessa dagana. Ekki jafn mikið stress þessa vikuna og var þá síðustu svo maður hefur notið þess að þurfa ekki að hanga í skólanum allan daginn og vinna verkefni.

Maður er þó engann veginn búinn. Er að vinna í því að undirbúa kynningu sem verður á fimmtudaginn og svo er ætlunin líka að vera nokkurn veginn tilbúin með kynninguna sem við þurfum að halda 13.jan svo það verður unnið af krafti áður en við höldum í jólafrí.

Gleðin er líka við völd vegna þess að ég fæ loksins að sjá kallinn minn á fimmtudaginn (ekki á morgun heldur hinn) eftir alltof langan aðskilnað.

Hann lendir á brautarstöðinni í Gautaborg hálftíma eftir að ég á að klára kynninguna mína í Consumption and Markets, svo strax eftir kynningu bruna ég út að taka á móti kallinum.

Á föstudeginum höldum við svo til Köben, en ég þarf reyndar að mæta í skólann til að taka á móti gagnrýni á skýrsluna okkar í Strategy and Organizations sem við þurfum svo að endurbæta og skila inn 11.janúar.

Það verður því mætt með töskurnar í eftirdragi þann daginn því ég þarf að bruna á lestarstöðina í kjölfar tímans. Fáum að vera fyrst svo ég geti heyrt gagnrýnina en svo er það bara "Adios Göteborg" "Hola Köbenhavn"

Sweet!!

Hlakka nú til að sjá ykkur á klakanum eftir örfáa daga.

Knús!!

Thursday, December 03, 2009

ég kemst í jólafíling

Bara tvær vikur eftir í skólanum og því nóg að gera þessa dagana. Hlakka svo ótrúlega mikið til þegar þetta tekur loks enda, þar sem síðasta mánuðinn eða svo hefur verið brjálað að gera, svo maður hefur varla tíma til að anda.

Næsta vika verður uppbókuð í fundum við að klára hópaverkefnin sem skil er á í vikunni á eftir eða seint í næstu viku.

Ég sé laugardaginn 12.des í hyllingum, en þann dag er ég búin að taka frá fyrir jólagjafastúss þar sem ætlunin er vera búin að öllu þegar ég kem heim.

Er á góðri leið í jólagjöfum. Held ég sé hálfnuð með þetta og hugmyndir fyrir langflestar komnar.

Annars er komin smá heimþrá í mann, svo það verður ljúft að lenda á klakanum 19.desember. Detta í dekur og rólegheit, þar sem hópafundir og skólalærdómur verða víðsfjarri. Allavega í nokkra daga :)

Höfum þetta stutt, hef engar sögur að segja, ekki frekar en fyrri daginn..

Knús í hús!!