If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Thursday, July 28, 2005

Versló

Planið er komið á hreint. Stúlkan sýnist mér ætla að taka púlsinn á umferðinni um helgina. Legg af stað eftir vinnu á morgun til ma&pa í bústað á Kirkjubæjarklaustri og verður litli bró í för með mér. Awesome!!
Við stoppum þó stutt, enda ekki hægt að vera fjarri siðmenningu borgarinnar of lengi og keyrum heim á laugardeginum (jah, meira svona laugardagskvöldinu).
Veit svo ekki hvort maður kíkir í bæinn um nóttina, fer eftir veðri og vindum held ég bara. Enda verður maður að vera ferskur fyrir Monkí bissniss 2005.
Þið spyrjið kannski hvað er Monkí bissniss 2005?? Það skal ég segja ykkur. Monkí bissniss 2005 er íþróttamót með rónaívafi. Ætlum við stúlkurnar að keppa í allskonar íþróttum á sunnudaginn og verður áfengið ekki skammt undan. It will be awesome I tell you!!
Við erum búnar að skipuleggja fullt af íþróttum og í lok kvöldsins verður krýndur sigurvegari og ef við verðum ekki dauðar eftir daginn þá verður vonandi slappað af í pottinum og kíkt á djammið. Vúhú!!

Jæja folkens

Leiteró og akið varlega um helgina :)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home