NO title
Farið að styttast í för mína til Þýskalands...jamm og já...brottför 17.ágúst. Sá tími sem ég hef áður en ég fer út verður varið með vinum og fjölskyldu :)
Er að hugsa um að skella mér í bústað næsta föstudag, byrjun verslunarmannahelgar, til famelíunnar hjá Kirkjubæjarklaustri og bruna svo í bæinn á laugardagskvöldinu og starta heljarinnar íþróttamóti sem er í planlagningu á sunnudeginum.
Lengra er ég nú ekki komin í hugsunum en hins vegar er nokkurn vegin komið á hreint að ég mun kveðja stúlkurnar mínar í sumarbústaðaferð helgina áður en ég fer út.
Það verður fjör sem endranær!!
Ætla enda þetta núna, er með of mikinn hausverk og 4 mínútur eftir af vinnunni :)
L8er

2 Comments:
Þetta íþróttamót verður massívt! Og ég tala nú ekki um sumarbústaðarferðina ... alltaf stuð ;)
ég mun gera mitt besta til að taka þátt í þessu móti, enda mikilvægur og kannski bara árlegur viðburður þar á ferð... hlakka til sumarbústaðaferðar and im going to miss u klemens....
Post a Comment
<< Home