If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Saturday, January 22, 2005

Whazz up people??

Tíminn líður hratt á gervihnattaöld...!! Svona hljómaði fyrsta lagið sem Íslendingar sendu í Eurovision árið 1986. Orð að sönnu finnst ykkur ekki?? Tíminn líður ekkert smá hratt, ég meina það er að koma febrúar. Þó það sé í raun ágætt að þetta líði allt svona hratt þá mætti nú samt aðeins hægja á. Mér liggur ekkert á að verða 22ja. Það er alltof mikið. Ókei, ég á ekkert afmæli nærri strax en maður eldist samt með hverjum deginum. Hrukkunum fjölgar og maður fer fyrr að sofa. Hættur að geta sofið út og fer á fætur kl. 6 til að verða fyrst í laugina. Minnið verður gloppóttara og svo ég tali nú ekki um djammið, maður verður þunnur af einum bjór og skreiðist ekki úr rúminu fyrr en á sunnudagskvöldi eftir að hafa skrallað einum of mikið á föstudagskvöldinu. Maður er hættur að horfa á sjónvarpið því ekki getur maður horft á heila mynd í einu án þess að dotta.
Er þetta framtíðin?? SHEIZE

Saturday, January 15, 2005

Hellú mæ darlíng beibídolls

Fékk kvörtun áðan um að ég hefði ekki skrifað síðan 12. janúar. Heilir þrír dagar síðan bara. Það gengur auðvitað ekki svo úr þessu verður bætt núna.
Pink félagi minn hún Diljá er orðinn 21 og af því tilefni ætlar hún að halda veislu fyrir okkur hinar pink gellurnar í kvöld. Mjög gott framtak þar og afar vel þegið :)
Einnig ætla ég að óska LN sem einnig er Pink félagi minn til hamingju með 19 og 1/2 árs afmælið. Stór áfangi þar á ferð.
Men hvað ég er hugmyndalaus þessa stundina, Stellan hefur ekkert fleira að segja að sinni.

Farið vel með ykkur þangað til næst

Wednesday, January 12, 2005

Skólastarf er hafið að nýju.

Þó svo að skólinn sé byrjaður aftur þá er heilinn minn ennþá í "fríi". Hann bara nennir ekki að hugsa og ég álasa hann ekki. Skil það barasta mjög vel. Jafnvel að pósta einhverju á þetta aumingjalega blogg er áreynsla fyrir hann :P Er búin að vera að vinna í dag frá 11 og það var sko margt sem þurfti að gera þar. Allt að verða kreisí þegar Stellan mætir ekki í tvo daga. Reyndar soldið skrítin tilfinning að mæta ekki í vinnuna þessa tvo daga og ég eiginlega bara saknaði hennar furðulegt nokk.
Vá...mér dettur bara ekkert fleira í hug að segja svo að ætli ég ljúki þessu ekki bara á þeim nótunum.

Þangað til næst...be cool, stay in school

Thursday, January 06, 2005

Spá og pæla

Áður en ég sofnaði í gær fór ég aðeins að pæla...já, það gerist stundum...en allavegana, pælingin var að þegar maður fer út að skokka/hlaupa á veturna í nístingskulda og frosti. Hvernig á maður að vera klæddur? Er úlpa, snjóbuxur, húfa og vettlingar málið eða er fólk í þunnu hlaupabuxunum og anorakknum?
Ástæðan fyrir þessum pælingum var að í gær rann á mig líkamsræktaræði og ég stóð úti á gólfi með íslenska orðabók í hendinni og lyfti sem mest ég mátti. Svo var ég nokkuð öflug í allskonar æfingum sem reyndu á mismunandi vöðva, tók meira að segja nokkarar armbeygjur og það er rosalegt í mínu tilviki.
En að aðalmálinu..það sem þessi skrif áttu að ganga út á..þá ég var ég að pæla að byrja að skokka úti nokkuð reglulega og eina sem stendur í vegi fyrir því er hvað ég er mikill kuldaskræfa. Hef samt aldrei séð útihlaupara í snjógalla.

Nú fer ég að horfa í kringum mig og taka eftir klæðanði fólksins sem er svo duglegt að stunda útilíkamsrækt á veturna :)
Vill eikver vera memm í átakinu mínu?? ;)

Stellino kveður...stefnir á toppinn

Wednesday, January 05, 2005

Eins og það leit út...

...sá ég fram á að árið 2005 yrði ekki gott. Það var sko ekki góður dagur á mánudaginn. Maður fékk ekki nema 2ja tíma svefn og þurfti að mæta í vinnu kl. 8. Það var fyrsta vísbending! Eftir fyrstu vinnu fór ég í vinnu nr. 2, Háskólabíó. Eikvað leiðist landanum þessa dagana því það var brjálað að gera allann tímann. Semsagt víbending nr. 2 að árið myndi ekki byrja vel. Sú þriðja var að bókstaflega allt var á móti mér þennan dag í miðasölunni því ekkert stemmdi og kom ég út í þvílíkum plús, boðsmiðarnir stemmdu ekki og einn posinn slökkti á sér sem gerði það að verkum að allar færslur á honum þurrkuðust út.

To sum it up; Ömurlegur dagur!!!

Það er þó allt á uppleið og ég er bjartsýn á framhaldið :)

Monday, January 03, 2005

Fögur fyrirheit...!

Nýtt ár með nújum fyrirheitum og markmiðum...er það ekki annars málið?? Ætla allavega að prófa að reyna að koma mér inní þessa bloggmenningu sem risið hefur hratt á undanförnum árum...or somþing :) Er alveg í ruglinu hérna og hef ekki hugmynd um hvað ég á að segja. Of lítill svefn í nótt, náði í mesta lagi tveimur tímum, óveðrið hélt fyrir mér vöku!! >:( Og ekki lítur út fyrir að maður nái að fara snemma að sofa í kvöld því dagurinn er troðinn, eftir að dagvinnu lýkur tekur kvöldvinnan við...svona er maður duglegur.

Jæja, back 2 business

Later people...you have been a good crowd :P