Vad som helst
Í Stokkhólmi er lífið gott. Er að vinna 50% og svo er það helst ræktin og heimilið sem maður er að sinna þessa dagana, auk Villa náttúrulega.
Við höfum gaman af því að prófa okkur áfram í eldamennskunni og stefnan er að koma heim sem snilldarkokkar. Villi er reyndar svo mikið fyrir chili að ég held að honum sé að takast að venja mig á að borða meira en meðalsterkan mat.
Síðan síðast
- var ég nánast búin að skera af mér fingurinn.. Ókei smá ýkjur en stelpan var að skera sér rúnstykki með alltof beittum hníf, hann rennur til og zúmm... mikið blóð og djúpur skurður. Var fljót að hugsa, greip klósettpappír og hélt að fingrinum, hoppaði í skó og hljóp út. Sem betur fer er læknastofa í næstu götu svo ég tók stefnuna beint þangað. Í móttökunni hikstaði ég út úr mér að ég hefði skorið fingurinn á meðan tárin láku. Það þurfti ekki að sauma heldur var bara límt fyrir sárið. Lítur vel út í dag og verður gróið áður en ég gifti mig. Kem þó til með að skarta fallegu öri.
- erum við búin að bóka okkur ferð til Egyptalands. Brottför 31.mars og heimkoma 10.apríl. Verður ljúft. Erum að fara 6 saman og búin að leigja okkur villu í Alexandríu. Stefnan er að tana sem mest, versla eitthvað og fá dash af egypskri menningu beint í æð. Var ég búin að segja hversu ljúft þetta verður.
Puss och kram från Stellino

4 Comments:
Egyptaland hljómar frekar næs! Ertu byrjuð að plana sumarið? Komið´ði heim?
Við komum heim í sumar. Þó ekki komin dagsetning á það, en býst við lok maí.
Sumarið frekar óplanað. Útilegur og svoleiðis samt definitly á planinu.
Egyptaland verður mega næs :) Sól og hiti - blanda sem klikkar ekki og ávísun á langþráð tan :)
Nú má ekki beila á útilegu - við erum bara einfaldlega of skemmtilegar til þess! :)
HG
Algjörlega. Plönum útilegu sumarið 2010. Festum helgi þegar dregur aðeins nær sumrinu :)
Post a Comment
<< Home