Esjan
Hæhæ
Plana að ganga á Esjuna á morgun eftir kvöldmat ef veðrið helst gott.
Hefuru áhuga á að skokka með??
Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.
Hæhæ
Plana að ganga á Esjuna á morgun eftir kvöldmat ef veðrið helst gott.
Hefuru áhuga á að skokka með??
...er væntanleg seinni partinn, jibbí!! Langþráð bið verður þá loks á enda. Vonum bara að þetta hafi allt gengið sem skyldi og að erfiðið verði vel launað.
Annað gott mál er að það er útborgunardagur á morgun, tvöfalt húrra fyrir því. Reyndar fer mestur hlutinn í að borga upp bílalánið svo ég geti skipt um tryggingafélag. En afgangnum get ég eytt í sjálfa mig, eða á maður kannski að spara sumarkaupið??
Sumarið er svo opinberlega að koma, 1. júní á morgun. Man time flies!!
Útilegur og sumarbústaðaferðir á næsta leiti og svo auðvitað fullt af partýum þar sem að maður þarf ekki að kvíða því að þurfa að vakna snemma næsta morgun til að læra.
LÚXUS!!
Planið er allavega að njóta lífsins og slappa af í allt sumar, reyna kannski að ná einhverjum lit þar sem að ég er sólarsjúk og svona. Flatmaga í laugum borgarinnar og stunda línuskautaiðkun af miklu kappi.
Oh, hvað ég elska sumarið. Ég er sko pottþétt SUMARbarn, elska þessa árstíð!!
Ætli maður verði ekki að halda áfram að vinna
Leiteró
Stellino out
Oh, ég er að fara í dekur á morgun. Er búin að panta mér tíma í handsnyrtingu og kannski að maður dúlli sér í gufu og skemmtilegheitum í Baðhúsinu eftir á. Hver veit!! Verður örugglega voða næs enda sjaldan sem maður gerir eikvað virkilega fyrir sjálfan sig...nema að kaupa föt, það leyfi ég mér nánast alltaf :) Enda er fataskápurinn eftir því...semsagt troðfullur.
Svo eru útskriftarveislur og brúðkaup um helgina. Namminamm, lots of food :) Og kannski með því líka!!
Ætli maður endi svo ekki helgina á því að horfa á KR vinna FH í fótboltanum á sunnudagskvöldið, held það bara :)
Stellino out
"Maybe this world is another planet's Hell."
- Aldous Huxley
Hæhæ
Svona aðeins búið að vera að gerast undanfarnar vikur og daga.
Ég fékk að vita um daginn að ég komst inn í skóla í Leipzig í haust og stefni ég á að vera þar eina önn. Á að mæta á staðinn 20. ágúst og fullt sem þarf að gera áður.
Ég hlakka annars ofsalega til þó það sé svolítið skerí að fara svona einn.
Þarf að vinna í því að finna kúrsa sem mig langar að taka, finna mér íbúð og panta flugfar ásamt fullt af öðru dótaríi.
Þetta verður annars heljarinnar ævintýri þar sem að ég hef aldrei staðið á eigin fótum þannig lagað áður.
En endilega...allir að koma í heimsókn :)
Helgin var annars skemmtileg og ég náði að hrista af mér slappleikann sem hrjáði mig á föstudaginn.
Á laugardaginn var Eurovision matarboð hjá Örnu og Guðrúnu og var gaman þar sem endranær. Klikkuðum auðvitað ekki á Singstar frekar en fyrri daginn og var mikið rætt um að kannski við ættum bara að senda Guðrúnu og Diljá sem dúet á næsta ári fyrir Íslands hönd.
Svo skelltum við okkur í bæinn seint og um síðir og var hann troðfullur, litlar manneskjur eins og ég hefðu troðist undir en þar sem að ég stend á mínu og læt ekki vaða yfir mig fór nú ekki svo.
Hefði getað lent í kröppum þegar maður var orðinn frekar ákveðinn í "bak í bak ýtingum" en þá faldi ég mig bara bak við einhvern alsaklaus ;)
Var orðinn ansi þreytt um hálf5 leytið svo að ég ákvað að drífa mig bara heim og splæsa í leigubíl en það fór ekki betur en svo að leigubílaröðin náði að tröppunum hjá MR svo ég labbaði bara heim í ísfrjósandi kulda, það var ekki hressandi!!
Þegar ég loks kom heim eftir hálftíma göngu klæddi ég mig í íþróttagallann, hoppaði undir sæng, breiddi teppi yfir og hringaði mig saman til að fá einhvern yl í kroppinn.
Mæli ekki með svona næturgöngum!!
Stellino out
"Some people walk in the rain, others just get wet."
- Roger Miller
Bömmer!!
Selma komst ekki áfram í gulrótar-átfittinu.
Hvað var annars málið með þennan búning??
Byrja að vinna á morgun hjá Eimskip og tilfinningin er tregablandin. Ofsalega gaman að vinna þarna en hryllir soldið við því að þurfa að vakna fyrir kl. 8 alla daga í sumar.
Á föstudaginn var sko tekið á því til að fagna skólalokum...sem betur fer þarf ég ekki að hitta fólkið þaðan í bráð...því maður var vægast sagt í ruglinu...svo miklu rugli meira að segja að itsí bitsí tæní bæní bútur af kvöldinu er frekar móðukenndur!!
Vonum bara að maður hafi ekki gert sig að of miklu fífli því maður verður frekar málglaður í álíka ástandi og ég var þetta kvöld :P
Ekkert hægt að gera við því auk þess sem mitt mottó er No regrets...what doesn't kill you only makes you stronger!!!
Við lifum og lærum
Skýrslan er fullkláruð og skilin eru afstaðin, svo fer bara flutningur og vörn á verkefninu á föstudaginn. Þannig að eftir kl.12 er öðru ári viðskiptafræði í mínu lífi lokið.
Stefni svo á að byrja að vinna á þriðjudaginn og vinna til loka ágúst.
En allavega til hamingju fyrir mig og djamm á föstudaginn!!
Drekkum fyrir því :)
Stellan mætir þessa dagana í skólann kl.9 á hverjum degi. Áður reynir maður að fara í ræktina en það er ekki að virka svo vel. Annars fer verkefnatörnin að klárast, bara nokkrar dagar eftir í helvíti...nei, þetta er ekki svo slæmt. Svo tekur bara vinna og djamm við í sumar. Planið er að tjútta af sér rassgatið í sumar og hafa ógisslega gaman. Það þýðir ekkert annað.
Tók svo þetta skemmtilega próf;
| Your dating personality profile: Athletic - Physical fitness is one of your priorities. You find the time to work athletic pursuits into your schedule. You enjoy being active. Wealthy/Ambitious - You know what your goals are and you pursue them vigourously. Achieving success is important to you. Liberal - Politics matters to you, and you aren't afraid to share your left-leaning views. You would never be caught voting for a conservative candidate. | Your date match profile: Athletic - You aren't looking for a couch potato. You seek someone who is active and who keeps his body in top shape. Funny - You consider a good sense of humor a major necessity in a date. If his jokes make you laugh, he has won your heart. Conservative - Forget liberals, you need a conservative match. Political discussions interest you, and a conservative will offer the viewpoint you need. |
Your Top Ten Traits 1. Athletic 2. Wealthy/Ambitious 3. Liberal 4. Funny 5. Outgoing 6. Big-Hearted 7. Adventurous 8. Traditional 9. Practical 10. Religious | Your Top Ten Match Traits 1. Athletic 2. Funny 3. Conservative 4. Big-Hearted 5. Outgoing 6. Traditional 7. Practical 8. Adventurous 9. Intellectual 10. Wealthy/Ambitious |
![]() | You scored as Diesel.
What Designer Brand Are You? created with QuizFarm.com |
Fyndið að Diesel sé "mæ þeing" þegar ég á ekki neina þannig flík!! Já, svona er maður púkó en samt töff fyrst ég kom þannig útúr prófinu...eða þannig :)