"Hvar er draumurinn..."
Mig dreymdi í nótt að ég hefði verið komin til Þýskalands og að Arna hefði ákveðið að koma með mér. Halda mér félagsskap svona fyrstu dagana. Við lendum og drífum okkur út á lestarstöð en við höfðum misst af lestinni, mættum tvem mínútum of seint svo við fengum ekki að fara í lestina. Lestarferðin átti að taka 15 tíma svo þetta var frekar fúlt en við ákveðum þá að rölta í bæinn og finna okkur gistingu einhversstaðar. Á fyrsta staðnum sem við mætum fáum við ekki gistingu, kallinum leist ekki á okkur (man samt ekki afhverju). Við höldum áfram og finnum loks herbergi. Gistiheimilið var samt frekar eins og flóttamannabúðir eða eikvað því það voru 7 rúm í hverju herbergi. Næsta sem ég man er að við ætlum að taka taxa og í honum voru bara allar Pink gellurnar mínar, ofsa gaman....svo bara man ég ekki meir eða vaknaði, er ekki alveg viss.
Ég er allavega farin að hlakka geðveikt til að fara til Þýskalands, pínu smeyk líka en samt aðallega spennt.
P.S. Maður verður nú að minnast á að það var bara celebriety á GrandRokk á föstudagskvöldið. Viggo kallinn Mortesen eða Aragon eins og margir þekkja hann kannski sem á staðnum. Awesome!!

1 Comments:
Já kellu finnst nú að þið hefðuð átt að biðja um eiginhandaráritun frá goðinu... svona þar sem mér finnst hann ótrúlega "hottie"
en gott afmæli ;) og góðar stundir í góðra vinahópi, vona að þú hafir verið ánægð með afmælisgjöfina...
Post a Comment
<< Home