If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Monday, October 12, 2009

When love takes over

Sweet wonderful Copenhagen að baki.

Lagði í hann á föstudagsmorgni, nánar tiltekið 5:35 þar sem lestin átti að leggja í hann frá aðalbrautarstöðinni í Gautaborg klukkan 6:27.
Fann sætið mitt og kom mér vel fyrir, dró húfuna niður fyrir augu og dottaði þar til ég kom að Lundi. Þá var maður tilbúinn að vakna þar sem það styttist í að maður myndi lenda í Köben.
Fannst nokkuð gaman að keyra svo í gegnum gamla heimabæinn minn Malmö. Vakti þokkalega upp minningar.

Í Köben tók Sigga, fyrrverandi vinnufélagi úr Glitni, á móti mér og við skelltum okkur í bröns á kaffihúsi nálægt tívolíinu.
Náðum aðeins að spjalla og slúðra áður en Villi (maðurinn sem ég hafði aðeins séð í gengum Skype í fjórar vikur) mætti á staðinn. Var svo glöð að sjá hann.

Við kvöddum svo Siggu og hringdum í Óla sem kom brunandi á bensínknúnum fák og sótti okkur og keyrði okkur á gististaðinn á Íslandsbryggju.
Komum okkur aðeins fyrir en drifum okkur svo fljótt af stað að kíkja niðrí bæ og fá okkur eins og einn öl.

Um kvöldið fórum við á Kebabish - vinsælan Kebab-stað sem var mjög ljúffengur. Eftir það var kíkt á Strecket og bjórinn sötraður í lítravís. Októberfest tilboð á barnum þar sem bjórinn var seldur í líterskrúsum.

Mikið stuð þetta kvöld sem endaði þó ekki nógu vel. Keppnismanneskjan Stella var mönuð af kærastanum sínum í kapp og sem tókst ekki betur en svo að ég slide-aði götuna og uppskar auman fót, marbletti og brunasár.

Á laugardegi drifum við okkur í Tívolí. Nokkrir fóru í rússíbanan en ég ákvað að fara í fallturninn. Frekar brött á því áður en ég settist í sætið og spennt beltið, en ekki jafn brött eftir að beltið var spennt og ég var á uppleið. Vá, hvað ég hélt að við ætluðum aldrei að stoppa. Niðurleiðin var betri og tók fljótt af.
Fór ekki í fleiri tæki þar sem það er meðal annars bara súper dýrt.

Tókum svo afslappelsi í fínu íbúðinni á Íslandsbryggju, pöntuðum Sushi og svo komu ótal Íslendingar í heimsókn þar sem sushi var borðað, áfengið var teygað, strákarnir horfðu á leikinn, drykkjuleikir og dans. Heljarinnar stuð sem leiddi til þess að heiðursgesturinn (hvorki ég né Villi) missti sig í gleðinni og komst ekki lengra en að Tívolíinu þegar ákveðið var bærinn væri ekki málið fyrir hann þetta kvöld.
Ég og Villi sáum um fellow-Svíabúann og tókum hann heim.

Daginn eftir voru allir hressir, ótrúlegt en satt. Um hádegi var svengdin farin að segja til sín svo við örkuðum á Strikið til að fá okkur að borða og síðan var gengið aftur heim þar sem veðrið og kuldinn buðu ekki uppá mikla útiveru.

Tókum svo almennt tjill áður en lestin flutti mig og Villa til Gautaborgar.

Núna er Villi farinn heim og ég er byrjuð í brjálæðinu aftur. Skóli skóli skóli.

Annars verð ég að geta þess að mér gekk súpervel á prófinu sem ég fór í um daginn. Íslenska einkunninn væri 9,5 en sænska gefur mér VG (very good)!
Mjög sátt!

Meira síðar,
Stay tuned.
Stellino

7 Comments:

At 8:29 AM, Anonymous unnur said...

hljómar eins og ótrúlega skemmtileg helgi..fyrir utan götuslide-ið :)

 
At 4:16 PM, Anonymous Anonymous said...

Alltaf gaman að lesa um ævintýri í útlöndum og váá hvað ég elska að geta bara stokið upp í lest og vera komin í annað land áður en maður veit af :)
Knús EBH

 
At 5:38 PM, Blogger Stella Björk said...

Unnur: Þetta var ótrúlega skemmtileg helgi.. fyrir utan götuslide-ið ;)

Elfa: Það er sko tótallí lovlí að geta hoppað uppí lest og vera komin í annað land nokkrum tímum seinna. Og ekki skemmir fyrir að það kostar aðeins brot af verðinu sem maður borgar til að komast af klakanum.

 
At 10:23 PM, Anonymous Anonymous said...

Hahaha elska keppnismanneskjuna Stellu!

Líka þessa sem er snillingur í skólanum!

Knús til Sverige
HG

 
At 11:49 AM, Anonymous LN said...

Til lukku med "mjog goda" einkun:)
Naesta stopp London right;)

 
At 5:40 PM, Blogger Stella Björk said...

London verður (vonandi) á dagskrá 2010 :)

 
At 12:08 AM, Anonymous Guðrún Ásta said...

Til lukku!!! Áfram STELLA

Minni á bloggið stelino.blogspot.com þar sem Stella mín Björk bloggar á arabísku :)
kv.
Guðrún

 

Post a Comment

<< Home