If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Monday, October 19, 2009

Starlight..

Nú er farið að styttast allverulega í Muse tónleika og verslunaræði.

Tónleikarnir eru næsta laugardag en Arna kemur til Stokkhólms á fimmtudaginn og þá ætlum við sko að skottast aðeins í búðunum. Ég hef ekki verslað mér neitt svo það er svo sannarlega kominn tími á það.
Er að vona að ég nái að hrista af mér strætósektina sem ég fékk um daginn þannig að ég geti eytt auka 1200 sænskum krónum. Það telur.

Annars er málið með strætósektina það að ég átti kort í strætó sem gildir í 30 daga. Í cirka 2 vikur ferðaðist ég á kortinu án þess að á því yrði tékkað. Svo er ég í strætó síðasta fimmtudag þegar verðirnir koma inn og biðja um að sjá kortin hjá öllum. Ég rétti þeim mitt í sakleysi mínu. Vörðurinn skannar kortið, horfir einkennilega á mig og biður svo um skilríki. Ég sýni henni stúdentakortið mitt og spyr hvort það sé ekki allt í lagi. Þá kom í ljós að ég var að ferðast á korti sem er ætlað svokölluðum skolungdom sem eru skólakrakkar á aldrinum 15-19 ára. Já sæll!! Kallinn í búðinni hafði semsagt selt mér eitthvað bandvitlaust kort, og ég stóð uppi með 1200 króna sekt í vasanum.

Brjáluð fór ég fyrst á miðasöluna hjá Strætó en þær bentu mér á skrifstofuna í næsta húsi. Þegar þangað var komið var mér sagt að ég gæti ekki kvartað fyrr en daginn eftir að ég fengi sekt. Dreif mig svo loksins í dag og útskýrði að ég hefði verið afgreidd um vitlaust kort. Þá kom í ljós að ég þurfti að fara í búðina sem seldi mér kortið og láta þá votta að þeir hefðu selt mér vitlaust kort.
Á heimleiðinni kom ég við í búðinni og fékk kallinn til að undirrita bréf um mistökin. Það þarf ég svo að senda á Strætó og er ég að vona að eftir það fái ég sektina niðurfellda.

Vona allavega að ég hafi ekki lagt allt þetta á mig til einskis. Þetta er komið í 5000 kall á tímann öll vinnan sem ég er búin að leggja á mig.

Farið að styttast í annan endann á fyrsta hluta í skólanum svo. Nóg að gera í "hótelinu mínu" og ótrúlegur tími sem fer í allskonar hluti og ákvarðanir sem maður þarf að pæla í. Það verður sko fagnað þegar það er búið.

En annars er Villi hérna alla vikuna. Kallinn bara kominn í semí-haustfrí í sínum skóla og ákvað að hafa það bara næs í Gautaborg á meðan konan fer í skólann alla daga. En við tökum svo lestina saman til Stokkhólms til móts við Örnu og félaga á fimmtudaginn.

Hef ekki meira að segja í bili.

Þar til seinna,
Stellino

3 Comments:

At 9:22 PM, Anonymous Diljá said...

Vá, geðveikt bögg! Eru þetta 1200 sænskar? 20.þús íslenskar??

 
At 12:04 AM, Anonymous Guðrún Ásta said...

Vá pirr pirr búðar kall!!! En standa á sínu honí, er með þér í liði :)

 
At 10:10 PM, Blogger Stella Björk said...

Já, Diljá, 20 fokking þúsund. En ég tek þessu ekki þegjandi. Kvörtunin er í vinnslu. Fæ vonandi að vita bráðlega.

 

Post a Comment

<< Home