If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Tuesday, October 27, 2009

They will not force us..

Er komin til Gautaborgar eftir yndislega daga í Stokkhólmi með Villa, Örnu og Gísla.
Ligg reyndar í veikindum þessa stundina. Byrjaði að slappast á leiðinni heim í lestinni í gær og svo skullu þau á með fullum þunga í nótt. Ákvað því að sleppa því að mæta á hópafundinn sem átti að vera í dag og vera frekar hress á morgun, svo maður geti tæklað síðustu vikuna í fyrsta hluta.

En að Stokkhólmi. Á hádegi á fimmtudaginn síðasta lögðum ég og Villi af stað í lestinni til Stokkhólms. Tókum Intercity lestina sem þýddi 5 tímar í lest í stað þriggja eins og vanalega. Þegar við vorum nýsest uppgötvuðum við að það var hvergi hægt að stinga tölvunum í samband og bæði vorum við með frekar lítið batterí eftir. En lestarferðin var þó ekki eins slæm og við sáum fyrir okkur í upphafi ferðar. Við drógum upp spilinn og tíminn leið bara ótrúlega hratt.

Á lestarstöðinni tók Arna mín og Gísli á móti okkur. Var svo gaman að sjá þau. Þau höfðu lent í Stokkhólmi nokkrum tímum áður og höfðu tekið smá rölt um borgina á meðan þau biðu eftir okkur. Eftir fögnuð endurfundana var rúllað af stað til Lidingö á meðan Villi fór og náði í sængur svo gestirnir myndu nú hafa það aðeins kósý á meðan dvöl þeirra stæði. Ég var aðeins rugluð hvert við ættum að fara fyrst en náðum áttum að lokum og á áfangastað komum við.

Villi eldaði TikkaMasala kjúkling sem við gæddum okkur á af bestu lyst á fimmtudagskvöldið.
Þar sem ellismellurinn Arna varð 25 ára deginum áður fórum við á Vampire Lounge og skáluðum í kokteilum. Þreytan sagði samt fljótt til sín og því var ekki verið lengi úti það kvöldið.


Föstudagur fór í búðarráp þar sem ég, Arna og Gísli styrktum öll sænska efnahagslífið og komum heim með nokkra poka hver. Á föstudagskvöldið fórum við svo í Íslendingapartý. Við uppgötvuðum reyndar fljótlega eftir komuna að partýhaldarinn átti afmæli og við ekki með pakka. Nokkrum mínútum áður en ég fékk vitneskju um afmælið var ég einmitt að velta fyrir mér afhverju allir komu færandi hendi. Fékk stuttu seinna svar við því :P

Laugardagurinn var stóri dagurinn. MUSE!!
Við vöknuðum í seinni kantinum og ákváðum bara að rölta um bæinn. Vorum boðin í Íslendingafyrirpartý fyrir tónleikana. Þar voru lögin blöstuð áður en rölt var á Hovet þar sem tónleikarnir voru haldnir. Geggjaðir tónleikar. Skemmti mér gríðarlega vel og gat meira að segja aðeins sungið með.


Eftir tónleika var annað partý. Mingluðum, dönsuðum og drukkum þar og skemmtum okkur hið besta. En þar sem Villi á heima í rassgati hættum við ekki á að fara alltof seint heim. Þessa nótt græddum við klukkutíma sem kom sér vel þar sem við sváfum alltof lengi frameftir á sunnudeginum þrátt fyrir fögur fyrirheit um að vakna snemma.
Ég og Arnan skottuðumst í bæinn þar sem Arna bætti við nýjum dressum. Ég hélt mig aðeins meira til hlés, enda nægur tími fyrir mig til að versla.

Á sunnudagskvöldið fórum við á geðveikan Sushistað þar sem maður borðaði á sig gat. Staðurinn heitir Asahi Sushi og bauð vel. 15 bitar á 99 krónur var góður prís.

Á mánudeginum tókum ég, Arna og Gísli semí skoðunarferð auk þess sem við tjilluðum á nokkrum stöðum víðsvegar um borgina. Villi þurfti hins vegar að fara í skólann.

Um sjöleytið í gær var svo komið að heimför. Ég knúsaði Örnuna mína fast og hlakka ótrúlega til að sjá hana eftir bara 8 vikur. Villa knúsaði ég líka en vona nú að það sé styttra þar til ég sé hann.

Svona var helgina í mörgum orðum.

Hafið það gott,
Stellino

4 Comments:

At 7:51 PM, Blogger Matthea said...

Er Vampire Lounge eitthvað í ætt við vampírubarinn í True Blood??

 
At 1:28 PM, Blogger Unknown said...

Hljómar eins og vel lukkuð helgi:)
Aldeilis að Íslendingarnir eru aktívir í Svíþjóð...tvö Íslendinga partý yfir eina helgi...

 
At 9:29 PM, Blogger Stella Björk said...

MO: Þyrfti að kynna mér TrueBlood.. hef því miður ekki séð þann þátt og því ekkert til að bera saman. Þetta er samt nokkuð kúl staður, er í kjallara þar sem veggirnir eru bert grjót. Búið að koma fyrir köngulóavefum í loftinu, dimmur og smá spooky.
Ellen: Mjög vel lukkuð helgi. Villi er kominn í Íslendingakommúnuna í Stokkhólmi. Voru actually þrjú partý um helgina svo þeir eru aktívir í partýstandinu þrátt fyrir svimandi hátt áfengisverð.

 
At 11:50 PM, Blogger Unknown said...

Hey ég var að borða sushi og borgaði aðeins tæp 7 pund fyrir svona 14 bita eða svo...var svona lestar staður, pínku lítill, með fullt fullt að velja úr rosa gott:)
Sko London er ekki alslæm eftir allt saman...

 

Post a Comment

<< Home