If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Wednesday, August 26, 2009

Fat bottom girls...


Tveir dagar búnir af nýnemavikunni og hingað til líst mér bara vel á þetta. Fólkið sem ég er allavega með í prógrammi virkar vel á mig við fyrstu sýn. Við erum víst 22 í bekknum að mér skilst, hefðum átt að vera 30 en það voru í víst 8 sem mættu ekki á skráningardaginn. 22 er því líklegast niðurstaðan og því bara vona á kósý-tæm hjá svona litlum bekk. Heheh.

Er annars að byrja í master sem heitir marketing and consumption og er þetta nýtt prógramm í skólanum. Hefur aldrei verið kennt áður og því svolítið spennandi að vita hvað maður er að fara út í. Eina sem ég hef í höndunum í dag er hvaða daga tímarnir verða næstu 6-8 vikurnar. Hef ekki hugmynd um hvernig verkefni eða kennslufyrirkomulag er, svo ég er mjög spennt að skólinn verði settur á mánudaginn.

En aftur að nýnemavikunni... Semsagt tveir dagar búnir.
Fyrsti dagurinn (í gær) fór aðallega í það að eldri nemar kynntu fyrir okkur skólann, félagslífið og lífið í Gautaborg almennt. Var ágætis dagur en mikill hluti hans fór í allskonar bið þar sem dagskráin var ekki að ná tímalimitinu sem hverjum dagskrálið var sett. Dagurinn byrjaði snemma um morguninn og lauk ekki fyrr um 6 leytið, eða þá fór ég allavega heim.

Í dag var dagurinn aðeins styttri. Fór á kynningu um skráningu inní landið, auk bókasafns- og heilsugæslukynningar. Eftir það dreif maður sig heim en það var víst ekki mikil hvíld sem maður fékk þar sem "the deputy major" hafði boðið nýnemum í Gautaborgarháskóla til formlegs kvöldverðar á slaginu 6. Ég fékk því skamman tíma til að gera mig til og finna formleg föt í þessu alltof litla úrvali af fötum sem ég er með (verð að fara að bæta úr því held ég). Þetta varð fínasta kvöld þar sem maður fékk að kynnast samnemendunum aðeins betur.

Dagskráin heldur áfram á morgun: tölvuaðgangur og rútuferð um borgina auk hópeflis. Það á sko ekki að láta manni leiðast hérna fyrstu dagana, sem er bara gott :)

Pís át!!


8 Comments:

At 10:26 PM, Anonymous Arna said...

Fínt að vera í svona litlum bekk, verður örugglega mjög kósí :)
Líst vel á sjopping spree ... ég held hins vegar fast í budduna og farin að safna í "spending money" sjóð fyrir Stokkhólms-för! :D

 
At 11:03 PM, Anonymous Guðrún Ásta said...

Ég er að hugsa um að skella mér til þín í vetur :)

 
At 2:27 PM, Blogger Stella Björk said...

A: Já, það verður vonandi kósý. Leggst allavega vel í mig.
G: Þú ert skoh velkomin. Eru einhverjar pælingar komnar í gang hjá þér með tíma eða?

Kys och kram

 
At 9:09 PM, Anonymous Guðrún Ásta said...

Jaa... nóv-des?

Ætla allavega að reyna að festa miða sem fyrst svo ég þurfi ekki að borga eina hendi og hálfan fót ;)

 
At 9:24 AM, Blogger Stella Björk said...

Já, mér líst vel á þetta plan. Ég get ekki alveg svarað fyrir hvernig skólinn hjá mér verður á þessum tíma. En það ætti alveg að reddast. Fyrr en seinna er þó alltaf best. Svo síðustu vikurnar í nóv ættu að vera bestar held ég, þá er líka jólaopnun Liseberg tívolísins, held ég alveg örugglega.

 
At 9:46 PM, Blogger Unknown said...

Gott að heyra að allt gangi vel:)
Hvernig er annars fjölskyldan sem þú býrð hjá eru þau ekki bara voða næs?

 
At 1:16 PM, Blogger Unknown said...

Ég tek þögn sem sama og samþykki...

 
At 4:46 PM, Blogger Stella Björk said...

Hehe...sorry! En jú, þetta er fínasta fjölskylda sem ég bý hjá. Voða næs og allt bara voða fínt hérna hjá mér. Allt til alls hérna hjá mér og væsir ekki um neitt :)

 

Post a Comment

<< Home