If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Monday, August 24, 2009

Bjallan hringir...

Þá er maður kominn til Gautaborgar eftir að hafa verið í Stokkhólmi í tæpa viku. Keypti mér lestarmiða á 1 krónu sænskar sem maður getur bara kallað nokkuð gott verð.

Ég og Villi höfðum það voða kósý í höfuðborg Skandinavíunnar þrátt fyrir smá stress í byrjun að finna samastað í vetur fyrir drenginn. Okkur tókst svo að kúpla okkur strax í námsmannagírinn og var því ekki mikið spreðað, þó ekki hafi verið skorið við nös heldur. Mætti bara segja að við tókum skynsemina á þetta.

Gat líka yfirgefið drenginn með góðri samvisku vitandi að hann yrði ekki á götunni í Stokkhólmi á meðan náminu stendur. Hann fékk stúdíó-íbúð og flytur inn í lok ágúst, svona þegar hann er búinn að redda sér helstu húsgögnum.

Ég byrja svo í heljarinnar kynningarprógrammi á morgun í skólanum. Dagskráin gefur til kynna að það verði voða mikið hópefli í gangi fyrstu dagana. Vonandi er þetta bara góður og skemmtilegur hópur sem maður mun stunda nám með næstu tvö árin.
Námið sjálft virðist þó ekki eiga að taka of mikinn tíma frá manni þar sem stundataflan segir að tímar í fögunum sé oftast frá 10-12 eða 13-15, nánast á hverjum degi en þó eru frídagar inná milli. Semsagt tveir tímar á dag í skólanum . Maður mun svo að sjálfsögðu reyna að vera duglegur að læra til að standa sig sem best og geta eytt einhverjum helgum með Stokkhólmsgæjanum. Svo ég tali nú ekki um allar hinar heimsóknirnar sem ég á von á... Er þaggi annars peeps?? ;)

Later annars á ykkur

Stellino
-sem er ekkert búin að versla í H&M

6 Comments:

At 9:26 PM, Blogger Unknown said...

þú ert nú í fullri vinnu við að browsa HM fyrir vini og vandamenn og senda heim þannig eins gott að þú sért svona lítið í skólanum :D

en tu tu í kynningarvikunni og skólanum.

 
At 10:55 PM, Anonymous Arna said...

Jag kommer snart!! 57 dagar :D

 
At 11:18 PM, Anonymous Hanna Guðný said...

Ekkert búin að versla í HogM??? úff fékk bara hroll þegar ég las þetta - verð eiginlega að reyna að safna fyrir ferð til þín svo ég geti bætt úr þessu!!!

Annars vona ég að þú sért að hafa það svakalega gott snúllan mín og njótir nú lífsins í botn... :)

Við Mattz höldum merkjum GG hátt á lofti á fös...

Skál og knús,
HG

 
At 6:44 PM, Blogger Matthea said...

Já við ætlum að drekka fyrir þrjá GG meðlimi skoh..

 
At 8:13 PM, Blogger Stella Björk said...

M og HG: Treysti að þið drekkið fyrir þrjá og endilega taka nokkrar myndir fyrir mig, svo ég geti aðeins verið með ykkur í anda.
Á og HG: Á bara eftir að gefa mér tíma til að fara í H&M. Það er sko ekkert sem maður á að gera í flýti. Nei, ég þarf langan tíma til að taka þetta út :)

 
At 8:18 PM, Blogger Stella Björk said...

A: 56 dagar núna :) Æði!

 

Post a Comment

<< Home