Stockholm, Sverige
Fengum gistingu hjá vinkonu systur Villa fyrstu dagana. Fékk smá áfall fyrst þar sem við höfðum fengið að vita að við myndum gista á sófanum í stofunni (allt í góðu með það), gerði bara ekki ráð fyrir að íbúðin væri stúdíóíbúð sem þýddi að rúm stelpunnar var skáhalt á móti sófanum.
Gistum þar í fjórar nætur og þrjár af þeim var eigandinn ekki heima svo við nutum góðs af því og fengum að sofa í rúminu sem var bara frekar næs.
Fyrsti dagurinn í Stokkhólmi var langur, lentum um 13 leytið og sáum þá að KTH var með móttöku á erlendum nemum og okkar beið rúta til að flytja okkur í KTH. Þar var upplýsingapakka úthlutað sem innihélt m.a. símkort, svo ég var snögg að þykjast vera verkfræðinemi tilbúin að nema við skólann.
Við Villi tókum svo gott session á McDonalds (vorum þar í tvo-og-hálfan tíma að spila Monopoly á I-phone) þar sem við gátum ekki komist í hús með töskur fyrr en hálf6.
Það tók svo við löng ganga frá neðanjarðarlest til íbúðar þar sem tilfinning í höndum var ekki til staðar þegar á leiðarenda var komið. En ljúft var það að setjast niður og fá sér kaldan bjór eftir langt ferðalag :)
Dagurinn var þó ekki alveg búinn þrátt fyrir að hjúin hafi farið snemma í rúmið. Uppúr eitt vaknaði nefnilega Stellan og klæjaði svona líka um allan líkamann. Kveikti ljósið og sá þá að húðin var upphleypt og bólgin á ýmsum stöðum. Ekki veit ég hvað þetta var en svefn og ofnæmispilla náðu þá að lækna þetta.
Dagarnir hafa annars verið rólegir. Tjill er eðal. Erum komin í íbúð á besta stað í Stokkhólmi tímabundið en Villi fer síðan í viðtal fyrir íbúð á sunnudag sem við erum vongóð með. Svo er ég bara á leiðinni til Gautaborgar á mánudaginn, þar sem heljarinnar kynningarvika hefst hjá skólanum á þriðjudagsmorgun.
Hef þetta ekki lengra í bili.
Stay tuned
Stellino


5 Comments:
Sælar skvísa.
Vildi bara kvitta fyrir lesturinn ;)
Knús á ykkur.
Líst vel á þetta bloggframtak sæta mín! Vertu dugleg að skrifa! Sakn sakn :**
Það er víst einhver að blogga líka á síðunni stelino.blogspot.com.. en það er á einhverju undarlegu tungumáli ;)
Hehehe :)
Gott að vita. Eins gott að Stellino var laust á sínum tíma.
Reyni svo að vera dugleg að skrifa en heimta líka fréttir af ykkur endrum og eins ;)
Ánægð með gott val - www.blogspot.com er snilld! ;)
Hlakka til að heyra af ævintýrunum!
Knús yfir.
Post a Comment
<< Home