Síðasta einkunn...
...er væntanleg seinni partinn, jibbí!! Langþráð bið verður þá loks á enda. Vonum bara að þetta hafi allt gengið sem skyldi og að erfiðið verði vel launað.
Annað gott mál er að það er útborgunardagur á morgun, tvöfalt húrra fyrir því. Reyndar fer mestur hlutinn í að borga upp bílalánið svo ég geti skipt um tryggingafélag. En afgangnum get ég eytt í sjálfa mig, eða á maður kannski að spara sumarkaupið??
Sumarið er svo opinberlega að koma, 1. júní á morgun. Man time flies!!
Útilegur og sumarbústaðaferðir á næsta leiti og svo auðvitað fullt af partýum þar sem að maður þarf ekki að kvíða því að þurfa að vakna snemma næsta morgun til að læra.
LÚXUS!!
Planið er allavega að njóta lífsins og slappa af í allt sumar, reyna kannski að ná einhverjum lit þar sem að ég er sólarsjúk og svona. Flatmaga í laugum borgarinnar og stunda línuskautaiðkun af miklu kappi.
Oh, hvað ég elska sumarið. Ég er sko pottþétt SUMARbarn, elska þessa árstíð!!
Ætli maður verði ekki að halda áfram að vinna
Leiteró
Stellino out

0 Comments:
Post a Comment
<< Home