Alvaran að taka við...
Byrja að vinna á morgun hjá Eimskip og tilfinningin er tregablandin. Ofsalega gaman að vinna þarna en hryllir soldið við því að þurfa að vakna fyrir kl. 8 alla daga í sumar.
Á föstudaginn var sko tekið á því til að fagna skólalokum...sem betur fer þarf ég ekki að hitta fólkið þaðan í bráð...því maður var vægast sagt í ruglinu...svo miklu rugli meira að segja að itsí bitsí tæní bæní bútur af kvöldinu er frekar móðukenndur!!
Vonum bara að maður hafi ekki gert sig að of miklu fífli því maður verður frekar málglaður í álíka ástandi og ég var þetta kvöld :P
Ekkert hægt að gera við því auk þess sem mitt mottó er No regrets...what doesn't kill you only makes you stronger!!!
Við lifum og lærum

0 Comments:
Post a Comment
<< Home