Í fréttum er þetta helst...
Hæhæ
Svona aðeins búið að vera að gerast undanfarnar vikur og daga.
Ég fékk að vita um daginn að ég komst inn í skóla í Leipzig í haust og stefni ég á að vera þar eina önn. Á að mæta á staðinn 20. ágúst og fullt sem þarf að gera áður.
Ég hlakka annars ofsalega til þó það sé svolítið skerí að fara svona einn.
Þarf að vinna í því að finna kúrsa sem mig langar að taka, finna mér íbúð og panta flugfar ásamt fullt af öðru dótaríi.
Þetta verður annars heljarinnar ævintýri þar sem að ég hef aldrei staðið á eigin fótum þannig lagað áður.
En endilega...allir að koma í heimsókn :)
Helgin var annars skemmtileg og ég náði að hrista af mér slappleikann sem hrjáði mig á föstudaginn.
Á laugardaginn var Eurovision matarboð hjá Örnu og Guðrúnu og var gaman þar sem endranær. Klikkuðum auðvitað ekki á Singstar frekar en fyrri daginn og var mikið rætt um að kannski við ættum bara að senda Guðrúnu og Diljá sem dúet á næsta ári fyrir Íslands hönd.
Svo skelltum við okkur í bæinn seint og um síðir og var hann troðfullur, litlar manneskjur eins og ég hefðu troðist undir en þar sem að ég stend á mínu og læt ekki vaða yfir mig fór nú ekki svo.
Hefði getað lent í kröppum þegar maður var orðinn frekar ákveðinn í "bak í bak ýtingum" en þá faldi ég mig bara bak við einhvern alsaklaus ;)
Var orðinn ansi þreytt um hálf5 leytið svo að ég ákvað að drífa mig bara heim og splæsa í leigubíl en það fór ekki betur en svo að leigubílaröðin náði að tröppunum hjá MR svo ég labbaði bara heim í ísfrjósandi kulda, það var ekki hressandi!!
Þegar ég loks kom heim eftir hálftíma göngu klæddi ég mig í íþróttagallann, hoppaði undir sæng, breiddi teppi yfir og hringaði mig saman til að fá einhvern yl í kroppinn.
Mæli ekki með svona næturgöngum!!
Stellino out
"Some people walk in the rain, others just get wet."
- Roger Miller

2 Comments:
Hva rosa var þetta djúp loka orð hjá þér kella... já maður á heldur ekki að labba einn heim skamm skamm er allaf að reyna að ala Örnu upp í að gera það ekki og svo ert þú bara ekkert betri... Rasskell. Fyrsti vinnu dagur í dag og þetta verður eitthvað skondnara en ég hélt (vaktirnar) þessi familyja alltaf að koma manni á óvart...
Ég er svo djúp :)
Ef ég hefði ekki labbað hefði ég þurft að bíða í leigubílaröð í klukkutíma og það var svo kalt úti!!
Post a Comment
<< Home