one minute I held the key..
Afsökun fyrir lélegheitum í bloggheimum síðustu vikur er ritstífla. Kannski af því að ég hef mest lítið vera að gera líka.
Skóli frá morgni til kvölds að mér finnst og nóg að gera í verkefnum og skólabókalestri.
En ég tók þó frí frá bókunum þessa helgina. Villi kom til Gautaborgar á miðvikudagskvöldið og höfðum við það rosalega gott þar til hann fór í hádeginu í dag.
Fjölskyldufólkið var að heiman þessa helgina svo við höfðum húsið útaf fyrir okkur og líkaði það ekki illa.
Buðum gesti í mat á fimmtudagskvöldið þar sem boðið var uppá heimabakaða pítsu. Amminammi!
Á föstudegi höfðum við það náðugt, enginn skóli, svo við sváfum bæði til hádegis. Uppúr hádegi skelltum við okkur svo í pottinn og höfðum með okkur einn kaldan. (við dekrum sko við okkur í fríum). Eftir almenna leti og tjill fórum við svo niður í bæ á svokallað AfterWork þar sem krár og skemmtistaðir bæjarins bjóða uppá áfengi á hálfvirði og mat með. Nutum þess í nokkrar klukkustundir en fórum svo heim á sómasamlegum tíma, enda var byrjað snemma.
Laugardagur fannst mér í raun líkjast sunnudegi. Áfram var sofið frameftir en við ákváðum þó að kíkja aðeins út til að bæta á áfengisbirgðarnar (humm hljómar eins og við höfum ekki gert neitt annað en að drekka alla helgina). Annars var kvöldið rólegt. Bjuggum okkur til góðan mat og slöppuðum af.
Sáum því lítið af Gautaborg þessa helgina utan bæjarferðar á föstudeginum.
Þetta var semsagt góð afslöppunarhelgi sem er alveg það sem maður þarf áður en næsta törn í skólanum hefst.
Ég er byrjuð að telja niður dagana. 4 vikur og 5 dagar þar til ég kemst í jólafrí*
*jólafrí þýðir heimapróf sem skil er á 13.janúar og undirbúningur lokakynningar 13.janúar og lærdómur fyrir lokapróf 16.janúar.
Kveð að sinni,
Untill next time..
Stellino

3 Comments:
Þetta var svo klárlega ekki sómasamlegur tími sem þið fóruð á.
Ég skal vera lengur næst.
En við vorum þó að í rúma 5 tíma niðrí bæ, sem mér finnst nú ágætt. Og við byrjuðum á undan þér. Allur föstudagurinn einkenndist af drykkju :)
Hlakka til að fá þig heim! Fór í jólahúsið um helgina og komst alveg í jóla(h)jólagírinn. Vúh! Keypti jólakúlur og allt, meðal annars rauðar í stíl við sófann! ;)
Post a Comment
<< Home