You don't put baby in a corner
Tíminn líður svo hratt, ný helgi komin áður en maður veit af.
Ætla þó aðeins að segja frá síðustu helgi áður en ég vík að vikunni og því sem hefur verið að gerast.
Síðasta helgi var náttúrulega bara æði. Fór til Stokkhólms þar sem Villi og foreldrar hans biðu mín. Byrjuðum á því að ferðast til Lidingö þar sem Villi á heima til að sýna foreldrunum vistaverur hans næsta árið eða svo. Settumst svo aðeins í garðhornið hans Villa með bjór og rákum þá augun í þetta líka flotta plómutré sem voru hinar ljúffengustu! Nema sú sem ég fékk - fyrsti biti leiddi í ljós lirfur og annað ógeð og var því ekki lengi að skyrpa henni útúr mér. Var svo með hroll lengi á eftir.
En maður hristi þetta af sér að lokum ákváðum við að skottast niðrí bæ til að finna einhvern góðan stað til að borða á. Það tók sinn tíma en að lokum fundum við æðislegan sushi-stað sem heitir East. Var alveg geðveikt gott og mæli með þessum stað ef þú átt leið hjá Stokkhólmi.
Á laugardeginum byrjuðum við Villi daginn á að fara að vatni á Lidingö. Fundum frábæran og sólríkan stað við vatnið en ókosturinn var þó að drekaflugunum líkaði líka svona asskoti vel við hann. Held ég hafi séð alveg 10 stykki á tímabili, en þá ákváðum við að flýja.
Fórum svo niður í bæ að hitta Siggu og Þórarinn og tókum þau á kaffihús í Kungsholmen þar sem hægt var að spila boccia. Skoruðum á þau í einn leik sem fór ekki betur en svo að við töpuðum þrátt fyrir góða forystu í byrjun. Nenni svo ekkert að segja nánar frá því hvernig leikar fóru þegar skipt var um lið.
Fórum svo og borðuðum á fínum indverskum stað um kvöldið og tókum svo drykk í lobbyinu á hótelinu sem Sigga og Þórarinn gistu á áður en komið var að kveðjustund.
Sunnudagurinn fór í chill aðallega. Kíktum niðrí miðbæ og sáum að Volvo var með opið showroom svo við ákváðum að kíkja inn. Þegar inn var komið sáum við vagna og kerrur í tugatali. Forvitnin var okkur yfirsterkari svo við laumuðumst á efri hæðina þar sem fjölskyldufólk var samankomið með öll öskrandi börnin sín. Þar sem verið var að bjóða uppá muffins og kampavín (góð blanda) ákváðum við að dvelja aðeins í látunum, eða þar til við vorum búin með kampavínið.
Á mánudeginum var svo komið að heimför.
Það er svo búið að vera mikið að gera í skólanum undanfarið. Skiluðum inn verkefni á fimmtudaginn sem gekk út á að meta svokallað interactive guide system sem átti að nota á sýningu á safni hér í bæ.
Höfðum farið nokkrum dögum áður og prófað kerfið í sambandi við sýninguna, sem fór ekki betur en svo að kerfið virkaði ekki. Var því aðeins erfitt að meta sjálft kerfið en við gerðum okkar besta. Verkefnið gekk rosa vel og við fengum hæstu einkunn :) Frekar næs að vera komin með 20% af einkunn í hús.
Það eru þó engin rólegheit framundan því á mánudaginn er lokapróf í hinu faginu sem ég er í. Gildir 40% svo maður þarf að eyða helginni í lærdóm þrátt fyrir sól og blíðu. Sólarsjúka-Stella öskrar inní mér yfir óréttlæti heimsins!!
En til að detta ekki í algjört þunglyndi þá ákvað ég þó aðeins að taka breik í gær og kíkja út með fellow-Íslendingnum Herði (You have been mentioned). Fórum og fengum okkur pítsu og öl sem var mjög kærkomið.
Kom svo heim á mjög sómasamlegum tíma, enda er maður alltof skynsamur, og við tók tribute til heiðurs Patrick Swayze - Dirty Dancing! Klassa ræma og kallinn flottur í henni.
Setjum punktinn á þetta í bili.
Stay tuned..
Stellino

5 Comments:
Oj. Lirfa!! Oj! Oj!
Skólinn: Áfram þú!
DD: Ég græt PS. Oh. Kallgreyið.
Oj. Lirfa!! Oj! Oj!
Skólinn: Áfram þú!
DD: Ég græt PS. Oh. Kallgreyið.
Ég verð að vera ósammála háttvirtri MO sem er félagi minn í háttverðum GG:
ÁFRAM SÓLARSJÚKA STELLA!!! ;)
Annars er ég farin að horfa á DD... :)
Áfram skammstafanir!!!
HG
hahahah! Ég bara gleymdi SS (Sólarsjúku Stellu). Þar hefði staðið SS: Muna sólarvörnina!!
;);)
Eksamen gar kjempe bra. Det er jeg helt sikker om. ;)
Kv. MO, háttvirtur félagi GG.
Hahaha...Áfram skammstafanir!
Lifran var svo sannarlega OJ. oj.oj.oj.
SS var skynsöm og lærði allan daginn en skellti sér svo í sólríkan göngutúr seinni partinn.
Sólarvörnin verður við hendina næst þegar sólin skína og þá verður þetta tekið af alvöru :)
Þakka stuðninginn frá háttvirtum félögum GG, MO og HG.
Áfram GG!
Post a Comment
<< Home