Gleðilega páska ungarnir mínir...
Það er svo sannarlega vor í hjarta mér þessa dagana, reyndar svo mikið að ég skrapp á línuskauta áðan til að ná í bílinn minn. Komst hálfa leið, þá gafst ég upp á skautunum og labbaði hinn helminginn. Þolið er ekki uppá sitt besta auk þess sem götur Reykjavíkurborgar hafa ekki verið sópaðar, sem er bara pirrandi fyrir línuskautavegfarendur. En hressandi var það engu síður!! Svo var ég alveg komin í stuð með að shæna bílinn minn en komst því miður ekki svo langt, náði bara hugsa um það, þá var einhvern veginn allur dugnaður úr mér og ég ákvað frekar að leggjast yfir Sex and the city og slappa af. Það munu nefnilega verða fá tækifæri til þess á komandi mánuðum þar sem að prófa- og verkefnatörn er á næsta leiti.
En nóg af þessu, ætla að gerast húsleg og fara að elda!!
Leiteró!!

1 Comments:
Sækó vúman! Ætlaðiru á línuskautum alla leið hingað! Bah!
Kalla þig góða að hafa farið hálfa leið ;)
Post a Comment
<< Home