Útþrá 2005
Mig langar svo að fara til útlanda að ég er að deyja. Er að spekúlera að fara í skiptinám í haust en aðalvandamálið er að ég veit ekki hvert mig langar að fara. Í rauninni get ég bara ekki gert uppá milli staðanna, mig langar á þá alla. Hafa allir sína kosti og sína galla alveg örugglega. En það er svo lítið hægt að dæma eftir heimasíðum. Maður verður bara að fara og upplifa staðinn.
Ég skipti um skoðun hvert mig langar á ca. klukkutímafresti. Eina vandamálið við þessa útþrá mína er að mig langar ekki að fara ein, það væri ósköp gott að fá einhvern með sér. Svona svo maður verði ekki of einmana og fái heimþrá! Því ég er óttalega heimakær. Hugsa að það myndi reddast að vera einn en samt...!
Jæja þýðir ekki að vera að drepa niður móralinn á föstudagskvöldi.
"You can't know where you're going until you know where you've been"

0 Comments:
Post a Comment
<< Home