Oji martröð
Oji, ég átti ekki góða nótt í nótt. Litli minns fékk martröð og hrökk upp klukkan 3 í nótt ógisslega skelkaður og lítill í sér. Ef mamma og pabbi hefðu verið heima hefði ég örugglega skriðið uppí til þeirra.
Draumurinn var ógisslegur þó hann hafi bara verið crap. Það versta var að hann átti sér stað inn í herberginu mínu og í draumnum komu alltaf svona há og hvell hljóð og ég var svona vakandi/sofandi í honum.
Það vantaði augun í sumt af fólkinu (sem ég þekkti allt) og svo var frændi minn hauslaus (ókei, það er kannski dáldið fyndið en það var það ekki í nótt). Svo hrökk ég upp þegar minn haus datt af og eikvað hræðilegt hljóð skar í eyrun (ég er ekki geðveik eða á lyfjum).
Ég var samt eikvað svo eftir mig eftir þennan draum að ég vakti í smástund og svaf svo með ljósið kveikt í alla nótt.
Litli hræddi Stellino kveður :S
P.s. Vona að mig dreymi ekkert í nótt.

1 Comments:
Ojojoji þetta er nú ekki geðsleg lýsing. Skil vel að þú hafir orðið svoldið skelkuð. Veit að ég hefði orðið það líka :s
Post a Comment
<< Home