Löggimann
Lenti í frekar skondnu atviki í gær.
Var að skutla stúlkunum heim úr afmæli hjá Evu og fyrsta stopp var Snorrabraut. Þegar ég er alveg að komast á fyrsta áfangastað um hálf1 leytið þá sjáum við mann ráfandi út á götu í annarlegu ástandi rekast utan í bíla og eikvað.
Við ákveðum að leggja fyrir utan hjá stelpunum og hringja í lögguna því maðurinn ráfaði þarna um og tók stefnuna upp Egilsgötuna.
Diljá hringir og löggan sem svarar segir bara “við vitum af þessu”. Eftir smá bið ákveðum við að fara á planið hjá ÓB og fylgjast með kallinum þar til löggan kemur. Það vill ekki betur til en svo að hann ráfar inn í einhverja innkeyrslu þar, hallar sér aftur og byrjar að míga, jafnvægið var þó ekki betra en svo að hann dettur aftur á bak.
Örnu er svo umhugað um manninn að hún íhugar að fara og hjálpa honum á fætur, við náum þó að stoppa hana af. Ákveðum þó að hringja í lögguna aftur og þykjast vera íbúar á Egilsgötunni svo að löggan komi frekar.
Arna hringir og talar við einhvern löggukall og segir að byttan liggi í innkeyrslunni á Egilsgötu 50.
Nokkru seinna sjáum við stóran löggubíl beygja inn Egilsgötuna og svo byrjar síminn að hringja. Það þorir enginn að svara svo ég geri það.
Í símanum er reið og frekar pirruð lögga.
Löggan: Voruð þið að hringja útaf manni? (Frekar hvass, eins og hann var allt samtalið).
Ég: Uh já
L: Egilsgata 50 er ekki til. Afhverju sagðiru Egilsgata 50 þegar hún er ekki til?
Ég: Uh, bara, af því að okkur sýndist húsið vera númer 50. (sem var ekki satt, Arna sagði bara tölu á milli 0 og 100). Við vorum bara á bensínstöðinni og sáum kall ráfandi á götunni og ákváðum að láta vita.
Ég: Uh, heyrðu, þið eruð búnir að keyra fram hjá manninum.
L: ÉG VEIT.
L: Þið eigið ekkert að segja að húsið sé nr. 50 þegar þið vitið það ekki.
L: Blessuð.....dudududu (hann skellti á mig).
Vá, hvað mér fannst þetta fyndið.
Lærdómurinn er; ekki ljúga að löggunni, hún verður reið!!

Later :)

3 Comments:
Jáhá Stella mín þetta var hinn dónalegasti maður og á maður þá að hika næst þegar hringja þarf í lögguna... ég bara spyr.. Annars hef ég og löggur átt góða samleið.. Ætti kannski að planta Jóni í lögguna.. some thing to think about
Löggan á Íslandi sökkar.
Höfðu þeir eitthvað betra að gera en að leita að rónanum? Bjánalegu löggur
Post a Comment
<< Home