If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Tuesday, June 07, 2005

Skemmtilegt

Pólsku myndlistanemarnir eru komnir í Skerjafjörðinn!! Loksins maður hefur verið að heyra af þeim út um allan bæ en það kom að því að þeir kíktu í heimsókn. Keypti reyndar ekki neitt af þeim né styrkti þá enda á fullu í eldamennsku þegar þeir komu.
Stelpan rétti mér lítinn miða en á honum stóð "ég er fátækur pólskur nemi....viltu kaupa mynd svo ég geti klárað skólann ef þú kaupir ekki mynd viltu þá styrkja mig...." eða eikvað á þessa leið.
Fannst dáldið fyndið þegar hún var að sýna mér myndirnar, sem voru alveg flottar, en ég bara vissi ekkert hvernig ég ætti að stoppa hana, hún bara hélt áfram að fletta. Að lokum stoppaði ég hana þó og afþakkaði.

Heyri í ykkur seinna

1 Comments:

At 9:00 PM, Anonymous Anonymous said...

hehehe hef ekkert heyrt um neina Pólska listamenn? En við systur keyptum 2 málverk á himin háa upphæð af einhverjum araba.. og myndirnar voru svo pottþétt eitthvað "fóní" prenntað í prentsmiðju. Handgert minn rass.

 

Post a Comment

<< Home