If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Thursday, June 16, 2005

Allt og ekkert

Jæja folkens, helgin nálgast óðfluga. Asskoti gott að fá svona þriggja daga helgi. Veit varla hvað ég á af mér að gera allan þennan tíma. Það hlýtur samt að reddast eins og allt annað.

Fólkið mitt er farið til Mallorca svo ég er nánast ein heima alla daga þar sem að Úlli og kötturinn eru mjög sjaldan heima.

Ætla að hitta stúlkurnar í kvöld, grilla og skemmta mér fram á morgun. Held það sé alveg málið í góða veðrinu. Svo ætla ég bara sofa úr mér þynnkuna á pallinum á morgun.
Verst að hengirúmið hennar mömmu er ekki komið!! Hún fékk nefnilega hengirúm frá pabba í útskriftargjöf og helmingurinn af því er bara á staðnum. Trébátur stendur út í miðju grasi.
Held hún sé að fela hengirúmið fyrir okkur þar sem að hún er ekki á landinu, var nefnilega ekkert geðveikt æst í að deila því með hinum fjölskyldumeðlimunum.

Ég má ráða hvort ég vinni 8-4 eða hálf 9-hálf 5. Á kvöldin hugsa ég...”ég mæti 8 í vinnuna á morgun og verð búin fyrr” , á morgnana hugsa ég “ farðu á fætur litla gerpi, þú ætlar að mæta snemma” en loksins klukkan 8 drattast ég á fætur og tekst að mæta rétt fyrir hálf 9. Af hverju er maður svona vangefin, hvers vegna er þetta svona erfitt?????

Hef verið að taka eftir því þegar ég er að hlusta á Ragnheiði Gröndal diskinn að hún er soldið hv-mælt. Man ekki hvað það er kallað, íslenskutímarnir greinilega ekki að gera sig. Þetta er allt dottið út.
Skemmtileg pæling!!!
Hot or what??


Jæja, nóg um allt og ekkert

Heyrumst

Át

1 Comments:

At 5:35 PM, Anonymous Anonymous said...

Hotter than hell ;)
Það er bara erfitt fyrri suma að vakna, ég veit að ég á aldrei eftir að vera morgunhress manneskja!
Og já ég hef tekið eftir þessu með Ragnheiði Gröndal, en mér finnst það bara flott.

 

Post a Comment

<< Home